Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti varaformaður samgöngunefndar stýrði fundinum þegar samgönguáætlun var afgreidd enda er hann framsögumaður málsins í nefndinni. Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins og formaður nefndarinnar mætti í fyrsta sinn til fundar eftir að hann kom aftur á þing. Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar ásamt áheyrnarfulltrúa Pírata gerðu athugasemdir við að hann gegndi áfram formennsku og lagði Helga Vala Helgadóttir fulltrúi Samfylkingarinnar fram tillögu um að kosinn yrði nýr formaður.
Tilmæli til ráðherra að hann ráðist í gjaldheimtuna
Þeirri tillögu var vísað frá og sögð eiga heima á vettvangi þingflokksformanna enda eru það þeir sem semja um skipan í nefndir þingsins og þrjú formannsembætti stjórnarandstöðunnar.
„Í því felast tilmæli til samgönguráðherra og í raun samþykki meirihluta nefndarinnar fyrir því að hefja hér framkvæmdir í samgöngumálum á grundvelli gjaldtöku. Fara þar með í mjög stórstígar framkvæmdir á næstu árum,“ segir Jón.
Samgönguráðherra þurfi að fylgja málinu eftir með frumvarpi á vorþingi þar sem gjaldtakan og þau verk sem heyrðu undir þau yrðu útfærð nánar og síðan þurfi Alþingi að endurútfæra samgönguáætlun á haustþingi. Hins vegar þýðir samþykkt samgönguáætlunar í dag að Vegagerðin getur boðið út eða hafið fjölmörg verkefni sem eru á hennar áætlun á þessu ári.
Fyrirhugað að nota gróðann í vegaframkvæmdir
Þótt ekki liggi endanlega fyrir hvaða verkefni það eru sem fara myndu í gjaldtöku segir Jón nokkur verkefni þó augljós. Boðið væri upp á nokkrar leiðir, eins og alfjármögnun með veggjöldum og samfjármögnun með framlögum úr ríkissjóði og veggjöldum.„En fyrir liggur samt sem áður hið augljósa að þarna er alveg sérstaklega um að ræða þessar höfuðleiðir þar sem slysatíðnin er mest. Hér í kringum höfuðborgarsvæðið þar sem þörfin er í raun að fara í mjög stórstíga framkvæmdir til að bæta vegakerfið. Þetta mun fela í sér að stigin verða bæði stærri og betri skref,“ segir Jón.
Þetta þýði að þar sem áður var fyrirhugað að fara í tveir plús einn veg verði farið í fulla tvöföldun og mislæg gatnamót. En þar er verið að tala um Vesturlandsveg, Suðurlandsveg austur fyrir Selfoss og Reykjanesbraut.
„Síðan þarf auðvitað að meta í nýrri samgönguáætlun í haust hvað verður gert við það fjármagn sem losnar um í samgönguáætlun við þessa ákvörðun. Þar eru bæði verkefni innan höfuðborgarsvæðisins sem og mögulega annars staðar,“ sagði Jón Gunnarsson.
Gengið væri út frá að verkefni í gjaldtöku verði greidd upp á um tuttugu árum eins og í Hvalfjarðargöngum og veggjöldin verði lægri en lægstu gjöld voru í Hvalfjarðargöngum.