Sterling kom City í undanúrslitin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mörk Sterling sendu City áfram
Mörk Sterling sendu City áfram vísir/getty

Manchester City tryggði sér sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins með 3-1 sigri á C-deildarliði Oxford í kvöld.

Joao Cancelo kom Englandsmeisturunum yfir á 22. mínútu leiksins og var staðan 1-0 í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn byrjaði frábærlega fyrir Oxford, Matt Taylor jafnaði metin strax á fyrstu mínútu hálfleiksins.

Gamanið var þó stutt hjá Oxford því Raheem Sterling kom City aftur yfir á 50. mínútu eftir frábæra sendingu frá Angelino.

Sterling bætti öðru marki sínu við á 70. mínútu eftir sendingu Gabriel Jesus og tryggði sigur City.

Englandsmeistararnir verða því í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira