Tevez mætti á Audi og leikmennirnir hlógu að honum: Rooney gaf honum Lamborghini Anton Ingi Leifsson skrifar 9. desember 2019 14:00 Tevez og Rooney léttir í bragði. vísir/getty
Carlos Tevez, framherji Boca Juniors í Argentínu, er í ansi athyglisverðu viðtali hjá Marca í dag en þar segir hann meðal annars frá tíma sínum hjá Manchester United. Tevez gekk í raðir Man. United árið 2007 en þá kom hann frá West Ham. Argentínumaðurinn og Wayne Rooney náðu afar vel saman og skoruðu samanlangt 72 mörk er liðið vann Meistaradeildina og ensku deildina í tvígang. Tevez ákvað svo að skipta yfir til grannanna í Manchester City en hann segir frá skemmtilegri sögu af æfingasvæði United. „Hjá Manchester United þá mæti leikmenn á æfingar í Ferrari eða Lamborghini. Allir. Líka verstu leikmennirnir áttu Ferrari,“ sagði Argentínumaðurinn í viðtali við Marca. „Ég mætti í Audi bíl sem félagið lét mig hafa og þeir gerðu grín að mér eins og þetta væri Fiat 600. Ég talaði við Rooney og sturlaði maðurinn sem hann er sagði við mig: Taktu þennan Lamborghini.“ 'I spoke to Rooney and he told me "take the Lamborghini"' Carlos Tevez reveals that 'crazy' ex-Man United team-mate gave him his car to keep as squad were mocking his Audihttps://t.co/31pi48aMPK— MailOnline Sport (@MailSport) December 9, 2019 „Ég fór, án þess að vera skráður fyrir bílnum, og keyrðu um Manchester á bílnum hans. Hann gaf mér hann.“ Tevez, sem leikur nú með Boca Juniors í heimalandinu, segir að hann eigi margt sameiginlegt með Rooney og ber mikla virðingu fyrir honum. „Ég sá mikið í honum því hann kom frá fátæku hverfi í Liverpool. Hann barðist fyrir öllum boltum eins og þeir voru þeir síðustu hjá honum. Þannig spilaði ég líka og ég sá mig endurspeglast í honum.“
Enski boltinn Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fleiri fréttir Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Sjá meira