Á að setja bikara í tóma bikarskápa Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 21. nóvember 2019 13:30 Vistaskipti hafa orðið í brú Tottenham. Inn kemur Portúgalinn Jose Mourinho og út fer Mauricio Pochettino. vísir/getty
Tottenham Hotspur hefur aðeins unnið þrjá titla á síðustu 28 árum. Það er ekki nóg fyrir eigendur sem hafa byggt nýjan völl og eru með lið fullt af landsliðsmönnum víða að og gæði innan vallar sem utan. Félagið rak stjóra sinn, Argentínumanninn Mauricio Pochettino, á þriðjudagskvöldið og réð José Mourinho. Mourinho hefur unnið titla alls staðar þar sem hann hefur drepið niður fæti og á að dusta rykið af bikaraskápum Tottenham. Það voru ekki endilega mikil tíðindi að Pochettino hefði verið rekinn heldur tímasetningin á brottrekstri hans. Pochettino hefur aðeins náð í 24 stig í síðustu 25 deildarleikjum. Hann tapaði 7-2 fyrir FC Bayern í Meistaradeildinni og það virtist augljóst eftir úrslitaleikinn gegn Liverpool að Argentínumaðurinn væri kominn á endastöð með liðið. Leikmenn vildu annaðhvort fara eða ekki semja og spilamennskan var eftir því. Með þessu fylgdu úrslit sem hæfa ekki liði sem spilar á einum flottasta velli Evrópu og telur sig vera eitt af stóru liðunum. En þeir hafa líka litlu eytt í leikmenn. Mourinho mun ekki líða það. Það hefur sagan sýnt. Á þeim fimm árum sem Pochettino var við stjórnvölinn eyddi Tottenham engum stórkostlegum upphæðum og frægt að félagið eyddi engu í 18 heila mánuði. Það mun ekki gerast á vakt Mourinho. Í grein The Athletic kemur fram að Argentínumaðurinn hafi verið búinn að tapa klefanum og leikmenn virtu hann sífellt minna. Þeir voru orðnir þreyttir á kröfum hans og undruðust taktík hans fyrir leiki. Fyrir einn leik fengu þeir einmitt lítil sem engin fyrirmæli og töpuðu. Þó stukku leikmenn til samfélagsmiðla og þökkuðu fyrrverandi stjóra sínum fyrir tímann og óskuðu honum alls hins besta. Fyrir tíma Pochettino hafði Tottenham aðeins endað tvisvar á meðal fjögurra efstu síðan enska úrvalsdeildin hóf göngu sína. Argentínumaðurinn kom og gerði félagið að einu af stóru félögunum en nú vilja eigendurnir meira. Og leita til Mourinho sem vinnur bikara hvar sem hann drepur niður fæti. Mourinho stýrði æfingum í gær enda leikjaprógramm Tottenham ekkert grín. West Ham um helgina en liðin eru engir perluvinir. Miðvikudaginn 4. desember er það svo Old Trafford, 11. desember fer liðið til Bayern og 22. desember er það Stamford Bridge. Mourinho hefur verið að búa til nýja ímynd af sér með því að sitja í sjónvarpinu og er nánast búinn að þurrka af sér fýlukallastimpilinn. Eitt er víst, þó að Tottenham sé nú í 14. sæti er liðið skyndilega til alls líklegt. Hvað næst fyrir Pochettino?Argentínumaðurinn hefur staðið sig vel hjá Tottenham þrátt fyrir skort á verðlaunapeningum. Enginn skyldi dæma hann á genginu undanfarna átta mánuði í deildinni. Frá því að hann tók við Tottenham hefur félagið orðið eitt af þeim stóru á Englandi. Það er vissulega laust starf hjá FC Bayern í Þýskalandi, sem vann Tottenham 7-2 í Meistaradeildinni. PSG hefur lengi horft löngunaraugum til síns fyrrverandi leikmanns en Pochettino spilaði 70 leiki fyrir félagið frá 2001-2003. Thomas Tuchel, sem þar stýrir, gæti þurft að horfa yfir öxlina á sér þó liðið hafi tekið framförum í byrjun tímabilsins. Manchester United hefur einnig horft til hans þótt Ole Gunnar sé enn við stýrið. Þá hefur seinni bylgja Zidane hjá Real Madrid ekki gengið þrautalaust. Pochettino verður ekki lengi án atvinnu. Í grein The Athletic segir að Argentínumaðurinn Pochettino hafi fengið boð frá eiganda félagsins um að segja af sér en neitað.
Birtist í Fréttablaðinu Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira