Erlent

Netanja­hú fær stjórnar­myndunar­um­boð

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels og leiðtogi Likud-flokksins.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels og leiðtogi Likud-flokksins. AP/Ariel Schalit
Forseti Ísraels hefur veitt Benjamín Netanjahú formanni Likud-flokksins umboð til stjórnarmyndunar. Þetta kemur fram á ísraelska fjölmiðlinum Haaretz.

Þingkosningarnar sem fóru fram í Ísrael 17. september skiluðu hvorki hægri né mið-vinstri blokkinni meirihluta. Benjamín Gantz leiðtogi hins Bláhvíta bandalags miðju-vinstriflokka hefur talað fyrir samsteypustjórn með Likud og Avigdor Lieberman, sem leiðir flokkinn Yisrael Beitenu, og er í oddastöðu í viðræðunum.

Gantz hefur þó í langan tíma sagt að hann vilji ekki taka þátt í sömu stjórn og Netanjahú.


Tengdar fréttir

Arabar vilja Gantz fremur en Netanja­hú

Þingmenn araba á ísraelska þinginu hafa lýst því yfir að þeir vilji að leiðtogi Bláhvíta bandalagsins leiði næstu ríkisstjórn landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×