Enski boltinn

Crystal Palace nælir sér í tvöfaldan Englandsmeistara

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Gary Cahill (til hægri) var fyrirliði Chelsea
Gary Cahill (til hægri) var fyrirliði Chelsea vísir/getty
Enska úrvalsdeildarliðið Crystal Palace nældi sér í öflugan liðsstyrk í gær þegar liðið gekk frá samningi við enska varnarmanninn Gary Cahill sem var án félags eftir að hafa yfirgefið Chelsea í lok síðasta tímabils.

Cahill er 33 ára gamall og gerir tveggja ára samning við Palace sem hafnaði í 12.sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

Cahill kom lítið við sögu með Chelsea á síðustu leiktíð en var í lykilhlutverki hjá Lundúnarliðinu meistaratímabilin 2014-2015 og 2016-2017.

Hann vann einnig Meistaradeild Evrópu með Chelsea auk þess að hjálpa liðinu að vinna bæði Evrópudeildina og enska bikarinn í tvígang. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×