Enski boltinn

Sjáðu móttökurnar sem Sadio Mané fékk þegar hann mætti aftur til vinnu hjá Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp var sáttur með að fá Sadio Mané aftur.
Jürgen Klopp var sáttur með að fá Sadio Mané aftur. Getty/ Andrew Powell
Sadio Mané er kominn til baka úr fríi og byrjaður að æfa með liðsfélögum sínum hjá Liverpool. Hann fékk góðar móttökur þegar hann mætti.

Liverpool lék án Sadio Mané allt undirbúningstímabilið og í leiknum á móti Manchester City um samfélagsskjöldinn.

Sadio Mané fór alla leið í úrslitaleik Afríkukeppninnar með Senegal og fékk því auk frí hjá Liverpool. Fríið var þó ekki langt. Úrslitaleikurinn fór fram 19. júlí og 5. ágúst var fyrsti vinnudagurinn hans. Þetta var því frekar stutt sumarfrí hjá Senegalanum.

Sadio Mané mætti í gær til vinnu á ný og hitti félaga sína í liðinu. Hann verður mögulega með í fyrsta deildarleiknum á móti Norwich á föstudaginn en þó aldrei í byrjunarliðinu. Líklegra er þó að Jürgen Klopp gefi honum meiri tíma en það góða við að fara í svona stutt sumarfrí er að hann datt ekki úr formi á meðan.

Liverpool setti myndbönd inn á samfélagsmiðla sína þar sem sjá má hvernig liðsfélagar Sadio Mané tóku á móti honum og svo einnig myndband af því þegar hann hitti Jürgen Klopp aftur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×