Innlent

Forsætisráðherra tilnefndur til verðlauna breskrar hugveitu

Kjartan Kjartansson skrifar
Katrín Jakobsdóttir er sögð hafa staðið fyrir eftirtektarverðum aðgerðum til að auka jafnrétti kynjanna.
Katrín Jakobsdóttir er sögð hafa staðið fyrir eftirtektarverðum aðgerðum til að auka jafnrétti kynjanna. Vísir/Vilhelm
Breska hugveitan Chatham House hefur tilnefnt Katrínu Jakokbsdóttur, forsætisráðherra, til árlegra verðlauna sinna fyrir framsækna stefnu í jafnrétti kynjanna og atvinnuþátttöku kvenna. Hillary Clinton og Melinda Gates eru á meðal fyrri verðlaunahafa.

Auk Katrínar eru David Attenborough, breski náttúrufræðingurinn heimsþekkti, og Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, tilnefndir til Chatham House-verðlaunanna í ár.

Attenborough er tilnefndur vegna sjónvarpsþáttaraðarinnar „Bláa plánetan II“ og áhrifa hennar á áhuga almennings á plastmengun í höfum jarðar. Ahmed hlaut tilnefningu fyrir að stuðla að fjölræði og tjáningarfrelsi í heimalandinu og að binda enda á áratugalöng átök við nágrannaríkið Erítreu.

Í umsögn hugveitunnar um Katrínu segir að hún hafi farið fyrir samsteypustjórn sem hafi verið brautryðjandi í að taka á kerfislægu misrétti kynjanna og efnahagslegri útilokun kvenna með aðgerðum gegn áreitni á vinnustöðum og heimilisofbeldi. Þá hafi hún unnið að því að lengja sameiginlegt fæðingarorlof og komið á jafnlaunavottun, fyrstu löggjöf sinnar tegundar.

„Þrátt fyrir að það sé enn verk að vinna í að berjast gegn kynjamisrétti á Íslandi, eins og alls staðar í heiminum, eru aðgerðir landsins til að auka atvinnuþátttöku kvenna grundvöllur fyrir djarfa og framsækna stefnumótun í mikilvægu viðfangsefni til að ná fram samfélagi þar sem réttur kynjanna er jafnari,“ segir í umsögninni.

Verðlaun Chatham House hafa verið veitt frá árinu 2005. Hillary Clinton og John Kerry, fyrrverandi utanríkisráðherrar Bandaríkjanna, Melinda Gates, annar stofnenda sjóðs Bills og Melindu Gates og samtökin Læknar án landamæra eru á meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaunin undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×