Bíó og sjónvarp

Heimildarmynd um Epstein í bígerð

Sylvía Hall skrifar
Epstein (f.m.) þegar hann var handtekinn á Flórída árið 2008. Hann átti yfir höfði sér lífstíðarfangelsi fyrir brotin sem hann var sakaður um en saksóknarar felldu niður ítarlega ákæru gegn honum.
Epstein (f.m.) þegar hann var handtekinn á Flórída árið 2008. Hann átti yfir höfði sér lífstíðarfangelsi fyrir brotin sem hann var sakaður um en saksóknarar felldu niður ítarlega ákæru gegn honum. AP/Uma Sanghvi/Palm Beach Post

Sjónvarpsstöðin Lifetime hefur tilkynnt að ráðist verði í gerð heimildarmyndar um bandaríska milljarðamæringinn Jeffrey Epstein. Myndin mun vera með svipuðu móti og fyrri mynd stöðvarinnar um tónlistarmanninn R. Kelly.



Myndin ber titilinn „Surviving Jeffrey Epstein“ og verður saga Epstein sögð. Epstein hefur verið sakaður um að hafa misnotað tugi stúlkna á heimilum sínum í New York og á Flórída á árunum 2002 til 2005. Í ákærunni kemur fram að hann á að hafa komið á fót og stýrt „neti sem gerði honum kleift að notfæra sér og misnota tugi stúlkna undir lögaldri kynferðislega“.



Sjá einnig: Greiddi fórnarlömbum sínum til að finna fleiri



Epstein er einnig þekktur fyrir vinskap sinn við valdamikla menn á borð við Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og Donald Trump, núverandi Bandaríkjaforseta. Fyrr í mánuðinum var greint frá myndbandi frá árinu 1992 þar sem Epstein og Trump virða fyrir sér ungar konur í samkvæmi.



Mál Epstein hefur vakið frekari athygli fyrir þær sakir að árið 2008 var hann dæmdur í 13 mánaða fangelsi. Epstein samdi við saksóknarann í Miami í Flórída um að alríkisákærur yrði felldar niður en í stað þess skyldi Epstein gangast við ríkisákærum og verja 13 mánuðum í fangelsi. Saksóknarinn sem sá um samninginn var Alexander Acosta, sem sagði af sér sem atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Trump vegna málsins.


Tengdar fréttir

Ep­stein verður ekki sleppt úr haldi gegn tryggingu

Jeffrey Epstein hefur verið neitað um að losna úr haldi gegn tryggingu en hann bíður nú eftir að réttarhöld hefjist yfir honum vegna ákæra um mansal á tugum stúlka sem hann misnotaði auk fleiri brota.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×