Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Freyja Þórisdóttir skrifar 17. október 2026 13:51 Afi Ylfu aðstoðaði hana við að skrifa skeytið og segist hún vera búin að láta hann vita af tíðindunum. Aðsend Hin níu ára Ylfa Björk Einarsdóttir fékk í vikunni svar við flöskuskeyti sem hún skrifaði og sleppti í sjóinn í sumar á Vestfjörðum. Það sem vakti mesta undrun hennar var að sú sem fann skeytið er staðsett í Dubrovnik í Króatíu og hefur skeytið því ferðast gríðarlega langa leið á einungis tveimur mánuðum. „Ég bjóst við að fá svona svar eftir kannski svona eitt, tvö ár eða eitthvað,“ segir Ylfa í samtali við blaðamann Vísis en hún hafi verið mjög hissa á því að fá svar frá finnskri stelpu sem væri á ferðalagi og hefði fundið skeytið í Króatíu. Naut aðstoðar afa „Mér fannst það mjög skrýtið. Ég var bara að hringja í mömmu mína og svo sagði hún mér að hún hefði fengið skilaboð frá einhverri stelpu í Króatíu sem hafði fundið flöskuskeytin frá mér,“ útskýrir Ylfa en hún skrifaði og myndskreytti skeyti sem hún setti svo í endurnýtta ginflösku með hjálp afa síns þann 14. ágúst og henti í sjóinn nærri Ögri í Ísafjarðardjúpi. Skeytinu var kastað í sjóinn á Vestfjörðum.Aðsend „Ég svona skrifaði og afi kom með svona hugmyndir til að skrifa,“ segir hún og bætir við að hún sé þegar búin að láta hann vita af fréttunum. Í tölvupósti sem móðir Ylfu fékk sendan þann 14. október segist stelpa hafa fundið skeytið og spyr hvort hún eigi að halda því eða pakka því aftur í flöskuna og henda út í sjó á ný svo að aðrir geti fundið það seinna. Mun skrifa fleiri Ylfa fylgdist grannt með sólmyrkvanum í sumar ásamt mömmu sinni, Sólbjörtu Sigurðardóttur, og litla bróður sínum honum Ísidór.Aðsend „Kannski má hún bara eiga þetta,“ segir Ylfa en stelpan hafði einnig sagst vera mikill Harry Potter-aðdáandi og hafa gaman af því að teikna, bæði tvenn atriði sem kom fram í skeytinu að væru áhugamál Ylfu. Ylfa segist „alveg örugglega“ ætla að skrifa fleiri flöskuskeyti enda hafi þetta gengið vonum framar. Annars séu þau fjölskyldan að bíða spennt eftir svari frá stelpunni þar sem hún segir betur frá því nákvæmlega hvar hún hafi fundið skeytið og hvernig ástandið hafi verið á flöskunni. Undirrituð sagðist ætla að reyna að ná í haffræðing til þess að komast til botns í því hvernig svona lagað gengi fyrir sig, sem gekk svo ekki, það virkaði svo ótrúlegt að skeytið hefði ferðast svo langa leið á svo stuttum tíma. Ert þú haffræðingur eða telur þú þig geta svarað spurningunni: meikar þetta ferðalag skeytisins sens? Endilega sendu okkur ábendingu á frettastofa@syn.is eða með fréttaskoti hér. „Greinilega fljótari en pósturinn,“ segir þá Einar Stefánsson, pabbi Ylfu, sem segir þá að hún hafi ætlað að skeytið myndi reka á land nær, svo sem á Englandi. Einar birti færslu um atburðinn á Facebook-síðu sinni þar sem hann veltir því upp hvort að þetta ferðalag skeytisins „meiki sens“ og biðlar til þeirra sem gætu svarað að fræða okkur hin. Króatía Hafið Ísafjarðarbær Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira
„Ég bjóst við að fá svona svar eftir kannski svona eitt, tvö ár eða eitthvað,“ segir Ylfa í samtali við blaðamann Vísis en hún hafi verið mjög hissa á því að fá svar frá finnskri stelpu sem væri á ferðalagi og hefði fundið skeytið í Króatíu. Naut aðstoðar afa „Mér fannst það mjög skrýtið. Ég var bara að hringja í mömmu mína og svo sagði hún mér að hún hefði fengið skilaboð frá einhverri stelpu í Króatíu sem hafði fundið flöskuskeytin frá mér,“ útskýrir Ylfa en hún skrifaði og myndskreytti skeyti sem hún setti svo í endurnýtta ginflösku með hjálp afa síns þann 14. ágúst og henti í sjóinn nærri Ögri í Ísafjarðardjúpi. Skeytinu var kastað í sjóinn á Vestfjörðum.Aðsend „Ég svona skrifaði og afi kom með svona hugmyndir til að skrifa,“ segir hún og bætir við að hún sé þegar búin að láta hann vita af fréttunum. Í tölvupósti sem móðir Ylfu fékk sendan þann 14. október segist stelpa hafa fundið skeytið og spyr hvort hún eigi að halda því eða pakka því aftur í flöskuna og henda út í sjó á ný svo að aðrir geti fundið það seinna. Mun skrifa fleiri Ylfa fylgdist grannt með sólmyrkvanum í sumar ásamt mömmu sinni, Sólbjörtu Sigurðardóttur, og litla bróður sínum honum Ísidór.Aðsend „Kannski má hún bara eiga þetta,“ segir Ylfa en stelpan hafði einnig sagst vera mikill Harry Potter-aðdáandi og hafa gaman af því að teikna, bæði tvenn atriði sem kom fram í skeytinu að væru áhugamál Ylfu. Ylfa segist „alveg örugglega“ ætla að skrifa fleiri flöskuskeyti enda hafi þetta gengið vonum framar. Annars séu þau fjölskyldan að bíða spennt eftir svari frá stelpunni þar sem hún segir betur frá því nákvæmlega hvar hún hafi fundið skeytið og hvernig ástandið hafi verið á flöskunni. Undirrituð sagðist ætla að reyna að ná í haffræðing til þess að komast til botns í því hvernig svona lagað gengi fyrir sig, sem gekk svo ekki, það virkaði svo ótrúlegt að skeytið hefði ferðast svo langa leið á svo stuttum tíma. Ert þú haffræðingur eða telur þú þig geta svarað spurningunni: meikar þetta ferðalag skeytisins sens? Endilega sendu okkur ábendingu á frettastofa@syn.is eða með fréttaskoti hér. „Greinilega fljótari en pósturinn,“ segir þá Einar Stefánsson, pabbi Ylfu, sem segir þá að hún hafi ætlað að skeytið myndi reka á land nær, svo sem á Englandi. Einar birti færslu um atburðinn á Facebook-síðu sinni þar sem hann veltir því upp hvort að þetta ferðalag skeytisins „meiki sens“ og biðlar til þeirra sem gætu svarað að fræða okkur hin.
Ert þú haffræðingur eða telur þú þig geta svarað spurningunni: meikar þetta ferðalag skeytisins sens? Endilega sendu okkur ábendingu á frettastofa@syn.is eða með fréttaskoti hér.
Króatía Hafið Ísafjarðarbær Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira