Íslenski boltinn

„Vertu velkominn á Meistaravelli Kristján Flóki Finnbogason!“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kristján Flóki Finnbogason í KR-búningnum.
Kristján Flóki Finnbogason í KR-búningnum. VÍSIR/MYND/KR
Kristján Flóki Finnbogason mætti á sína fyrstu æfingu með KR í dag en KR staðfesti komu framherjans þann 17. júlí.

Sögusagnir höfðu verið um að Kristján Flóki hafi verið að velja á milli uppeldisfélagsins FH og svo KR en hann valdi KR að endingu.

Hann gerði fjögurra ára samning við félagið en hann bætist við sterkt lið KR sem er á toppi Pepsi Max-deildarinnar. KR-ingar birtu svo mynd af Kristjáni í KR-búningnum í dag.





KR er á toppi deildarinnar með 33 stig, með tíu stigum meira en Breiðablik, sem spilar nú við Víking.

Vesturbæjarstórveldið er einnig komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins þar sem liðið mætir FH þann 14. ágúst. Kristján Flóki snýr þá aftur í Kaplakrika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×