Enski boltinn

Real Madrid vill að Gareth Bale verði hluti af kaupunum á Paul Pogba

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gareth Bale og Paul Pogba.
Gareth Bale og Paul Pogba. Mynd/Samsett/Getty
Paul Pogba hefur lengi verið orðaður við spænska stórliðið Real Madrid en nú berast fréttir frá Spáni að Gareth Bale verði að fylgja með í kapunum.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, vill að félagið kaupi Paul Pogba frá Manchester United. Hann vill líka losna við Gareth Bale. Franski knattspyrnustjórann dreymir því um að slá tvær flugur í einu höggi.

Manchester United vill hins vegar ekki selja Pogba fyrir minna en 150 milljónir punda og það þykir Real Madrid allt of mikið. Lausnin hjá Real Madrid er að bjóða Gareth Bale í kaupbæti samkvæmt heimildum Marca á Spáni.  





Gareth Bale hefur verið orðaður við Manchester United en lítið hefur samt heyrst af því að undanförnu. Það leit út fyrir að United væri búið að missa áhugann á velska landsliðsmanninum.

Það er hins vegar staðreynd málsins að Zinedine Zidane er ekki með pláss fyrir Gareth Bale í sínu liði og það stefnir því í ískaldan og langan vetur fyrir Bale losni hann ekki frá Real Madrid.

Gareth Bale er með risasamning við Real Madrid og sá hinn sami rennur ekki út fyrr en árið 2022. Bale kom til Real Madrid árið 2013 en skrifaði undir núverandi samning árið 2016. Það er pottþétt að Bale er ekki að fara að taka á sig launalækkun og situr frekar bara á bekknum hjá Real Madrid.





Gareth Bale var eitt sinn talinn vera einn af bestu knattspyrnumönnum heims en meiðsli og óvissa hafa séð til þess að hann er ekki í þeim hópi eins og er. Bale er engu að síður mjög öflugur knattspyrnumaður og enn bara 29 ára gamall.

Paul Pogba er sagður vilja ólmur komast til Real Madrid í sumar og umboðsmaður hans Mino Raiola hefur tvisvar mætt til Manchester til að reyna að pressa á sölu.

Eftir titillaust og vandræðalegt tímabil er engu sparað til á Santiago Bernabeu við að búa til nýtt framtíðarlið hjá Real Madrid.

Real Madrid hefur þegar eytt 344 milljónum punda í nýja leikmenn í sumar og sú tala fer langt yfir 400 milljónirnar ætli menn að bæta Pogba við. Donny van de Beek hjá Ajax er aftur á móti einn af þeim leikmönnum sem Real gæti fengið ef kaupin á Paul Pogba ganga ekki upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×