Enski boltinn

400. sigurleikur Klopp kom í kvöld

Anton Ingi Leifsson skrifar
Klopp þakkar stuðningsmönnum Liverpool fyrir stuðning kvöldsins.
Klopp þakkar stuðningsmönnum Liverpool fyrir stuðning kvöldsins. vísir/getty
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vann í kvöld sinn 400. leik sem þjálfari en sigurinn kom í 2-0 sigri á Porto í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Þetta var 111. sigurleikurinn Klopp í stjórastólnum hjá Liverpool en hann tók við liðinu í októbermánuði 2015 og hefur gert góða hluti með liðið síðan þá.







Á undan því stýrði Klopp liði Borussia Dortmund en hann var þar í sjö ár, frá 2018  til 2015. Sigurleikirnir hjá gula veggnum voru 180 en hjá Mainz voru sigurleikirnir 109.

Liverpool vann 2-0 sigur á Porto í kvöld og er í góðum málum fyrir síðari leik liðanna í átta liða úrslitunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×