Innlent

25 milljónir til björgunar­starfa í Mó­sambík og Malaví

Atli Ísleifsson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að eyðileggingin á svæðinu vegna Idai sé meiri en orð fái lýst og að íbúar hamfarasvæðanna hafi liðið ómældar þjáningar.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að eyðileggingin á svæðinu vegna Idai sé meiri en orð fái lýst og að íbúar hamfarasvæðanna hafi liðið ómældar þjáningar. Vísir/Vilhelm
Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna að ráðstafa 25 milljónum íslenskra króna til björgunarstarfa á hamfarasvæðunum í Mósambík og Malaví.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Óttast er að á annað þúsund hafi látið lífið í ofsaflóðum í kjölfar fellibylsins Idai sem gekk yfir sunnanverða Afríku fyrr í mánuðinum. Í tilkynningunni kemur fram að þegar hafi verið staðfest að rúmlega 760 hafi farist. Hundruð íbúa er enn saknað, flestra í Beira og nágrenni, þar sem tæplega 34 þúsund heimili eyðilögðust.

Haft er eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra að eyðileggingin á svæðinu vegna Idai sé meiri en orð fá lýst og íbúar hamfarasvæðanna hafi liðið ómældar þjáningar. „Við getum ekki staðið aðgerðalaus hjá slíkum hörmungum heldur ber okkur siðferðisleg skylda til að hjálpa þeim sem um sárt eiga binda, ekki síst í ljósi þess að um samstarfsríki Íslands til margra ára er að ræða.“

Björgunarsveitir leggja nú áherslu á matvæla- og lyfjaaðstoð, vatn- og salernisaðstöðu, auk þess sem kapp er lagt á að koma upp neyðarskýlum.

„Heilbrigðisstarfsfólk leggur nótt við dag að bólusetja íbúa gegn kóleru til að freista þess að afstýra faraldri. Þegar hafa verið staðfest 139 tilvik þessa banvæna smitsjúkdóms í Mósambík. Aðrir vatnsbornir sjúkdómar hafa líka látið á sér kræla,“ segir í tilkynningunni.

Malaví er annað tveggja samstarfslanda Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Íslendingar lokuðu sendiráðu sínu í Mósambík fyrir um ári en styðja þó áfram þróunarstarf í landinu, að því er fram kemur í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×