Níu marka sigur City sá stærsti í undanúrslitunum frá upphafi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 9. janúar 2019 21:49 Jesus fór á kostum í leiknum vísir/getty
Manchester City valtaði yfir Burton í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins í kvöld. Aldrei áður hefur undanúrslitaleikur unnist með svo miklum mun. Ljóst var að verkefnið væri erfitt fyrir C-deildarlið Burton sem mætti á Etihad völlinn í kvöld og mætti einu besta liði heims. Það bjuggust þó fæstir við slíkri niðurlægingu og úr varð. Kevin de Bruyne skoraði fyrsta markið á fimmtu mínútu og má í raun segja að þá hafi leikurinn verið búinn. Gabriel Jesus sá hins vegar um að öll von stuðningsmanna Burton væri úti með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla eftir um hálftíma leiks. Margir stuðningsmanna Burton sáu þau mörk hins vegar ekki þar sem þeir áttu í erfiðleikum með að komast á völlinn sökum umferðar. Oleksandr Zinchenko bætti við marki áður en fyrri hálfleikurinn var úti og það var skot í glæsilegri kantinum. Staðan 4-0 í hálfleik en bara einn fjórði af einvíginu búinn. Jesus bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik og kláraði leikinn með fjögur, hann er nú orðinn markahæstur í deildarbiarnum. Kyle Walker, Riyad Mahrez og Phil Foden bættu allir við sínu markinu hver í 9-0 sigri City. Þetta var stærsti sigur í deildarbikarnum síðan árið 1986 þegar Liverpool vann Fulham 10-0. Því miður fyrir leikmenn Burton er einvígið þó aðeins hálfnað, City mætir til Burton 23. janúar fyrir seinni leikinn. Það þyrfti þó mesta kraftaverk íþróttasögunnar til þess að koma í veg fyrir að City mæti í úrslitaleikinn á Wembley.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira