„Flytjum um leið og hann er tilbúinn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2018 17:00 Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham. Getty/Robbie Jay Barratt
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, er viss um að nýr leikvangur félagsins muni hjálpa hans liði að afreka meira á næstu árum. Tottenham er á svaka skriði í ensku úrvalsdeildinni og er komið upp fyrir Manchester City og upp í annað sæti deildarinnar á eftir Liverpool. Liðið hefur þurft að spila heimaleiki sína á Wembley undanfarið eitt og hálft ár en nú er loksins verið að leggja lokahöndina á nýja leikvang félagsins sem var byggður á sama stað og gamli White Hart Lane.Tottenham boss Mauricio Pochettino says moving into the club's new stadium will "help the team to achieve more".https://t.co/MMbL1ZdxFhpic.twitter.com/zBGwH4gzw6 — BBC Sport (@BBCSport) December 28, 2018Nýi leikvangurinn tekur rúmlega 62 þúsund manns í sæti. Hann átti að vera tilbúinn í ágúst en kláraðist ekki í tíma. Nú er stefnan sett á að taka hann í notkun í byrjun ársins 2019. „Við flytjum um leið og hann er tilbúinn,“ sagði Mauricio Pochettino og hann getur ekki beðið eftir að fá alvöru heimvöll á ný.„Að fá að spila á þínum eigin leikvangi er það besta sem getur gerst í þínu lífi. Það mun gefa liðinu mikinn aukakraft. Þetta verður staður þar sem stuðningsfólk okkar getur hjálpað liðinu að afreka meira,“ sagði Pochettino. „Ég er ánægður með Wembley en ef leikvangurinn væri tilbúinn á morgun þá myndum við flytja á morgun,“ sagði Pochettino. Pochettino talaði líka um Anfield, heimavöll Liverpool, og stemmninguna þar. Hann sér slíkt stuð í hillingum. „Anfield er stórkostlegur. Þar er partý í hverjum heimaleik Liverpool og það gerir oft útslagið. Maður fann hvað leikvangurinn þráði sigurinn í leiknum við Newcastle,“ sagði Pochettino.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira