Æsispennandi þegar sérfræðingar BBC völdu á milli De Bruyne og Salah Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2018 08:30 Kevin de Bruyne og Mohamed Salah. Vísir/Getty
Hver er besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili? BBC fékk sautján knattspyrnusérfræðinga sína til að velja. Leikmannasamtökin velja besta leikmann tímabilsins og á morgun verður tilkynnt hvaða leikmenn koma til greina að þessu sinni. Það var N'Golo Kante hjá Chelsea sem vann þessi eftirsóttu verðlaun í fyrra. Sérfræðingarnir í liði með BBC eru Alan Shearer, Frank Lampard, Danny Murphy, Jermaine Jenas, Rachel Brown-Finnis, Matthew Upson, Leon Osman, Mark Schwarzer, Mark Lawrenson, Danny Mills, Chris Sutton, Kevin Kilbane, Chris Waddle, Alex Scott, Pat Nevin, Dion Dublin og Joleon Lescott. Allir völdu þeir sex bestu leikmenn deildarinnar að þeirra mati og svo hver af þeim ætti að standa uppi sem leikmaður ársins. Tuttugu leikmenn komust inn á topp sex hjá sérfræðingunum en allir sautján völdu annaðhvort Kevin de Bruyne hjá Manchester City eða Mohamed Salah hjá Liverpool sem besta leikmanninn. Mohamed Salah er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 29 mörk og hefur einnig lagt upp 10 mörk fyrir félagana. Salah er alls með 39 mörk í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili með Liverpool-liðinu. Kevin de Bruyne er lykilmaður verðandi Englandsmeistara og er sá sem hefur gefið flestar stoðsendingar eða 15. Belginn hefur einnig skorað sjö mörk. De Bruyne er ennfremur eini leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar sem hefur skapað yfir hundrað marktækifærið fyrir félaga sína (102) en næsti maður er með 84 (Mesut Özil).Svona völdu sérfræðingarnir og eins og sjá má var þetta æsispennandi: Alan Shearer: Mohamed Salah (Salah 1-0 De Bruyne) Frank Lampard: Kevin de Bruyne (Salah 1-1 De Bruyne) Rachel Brown-Finnis: Mohamed Salah (Salah 2-1 De Bruyne) Jermaine Jenas: Kevin de Bruyne (Salah 2-2 De Bruyne) Chris Sutton: Mohamed Salah (Salah 3-2 De Bruyne) Danny Mills: Kevin de Bruyne (Salah 3-3 De Bruyne) Mark Schwarzer: Mohamed Salah (Salah 4-3 De Bruyne) Pat Nevin: Kevin de Bruyne (Salah 4-4 De Bruyne) Alex Scott: Mohamed Salah (Salah 5-4 De Bruyne) Matthew Upson: Kevin de Bruyne (Salah 5-5 De Bruyne) Dion Dublin: Mohamed Salah (Salah 6-5 De Bruyne) Leon Osman: Kevin de Bruyne (Salah 6-6 De Bruyne) Mark Lawrenson: Mohamed Salah (Salah 7-6 De Bruyne) Chris Waddle: Kevin de Bruyne (Salah 7-7 De Bruyne) Kevin Kilbane: Mohamed Salah (Salah 8-7 De Bruyne) Joleon Lescott: Kevin de Bruyne (Salah 8-8 De Bruyne) Danny Murphy: Mohamed Salah (Salah 9-8 De Bruyne)Leikmennirnir sem fengu tilnefningar eru, auk Mohamed Salah og Kevin de Bruyne, þessir hér: Harry Kane (Tottenham) Raheem Sterling (Man City) David de Gea (Man Utd) David Silva (Man City) Christian Eriksen (Tottenham) Fernandinho (Man City) Abdoulaye Doucoure (Watford) Roberto Firmino (Liverpool) Wilfried Zaha (Crystal Palace) Mousa Dembele (Tottenham) Son Heung-min (Tottenham) Leroy Sane (Man City) Sergio Aguero (Man City) N'Golo Kante (Chelsea) Marko Arnautovic (West Ham) Ederson (Man City) Jan Vertonghen (Tottenham) Nick Pope (Burnley) Jesse Lingard (Man Utd) Það má finna alla umfjöllun BBC um valið og rökstuðning hvers og eins með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Sjá meira