Líkir Ole Gunnar Solskjær við góðan særingamann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. desember 2018 13:30 Ole Gunnar Solskjær. Vísir/Getty
Manchester United hefur fengið sex stig og skorað átta mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum undir stjórn Norðmannsins Ole Gunnar Solskjær. Dökku skýin eru á bak á burt á Old Trafford og skælbrosandi Ole Gunnar á hliðarlínunni er gott merki um sólaruppkomu í Leikhúsi draumanna eftir lægðir og þrumuveður síðustu vikna og mánaða. Manchester United hefur unnið 5-1 sigur á Cardiff og 3-1 sigur á Huddersfield í fyrstu tveimur leikjum sínum undir stjórn Ole Gunnar Solskjær. Paul Pogba, milljarðamaðurinn sem var út í kuldanum hjá Jose Mourinho, hefur átt þátt í fjórum af átta mörkum United-liðsins í þessum tveimur leikjum. Pogba átti tvær stoðsendingar á móti Cardiff og skoraði tvö mörk á móti Huddersfield. United-liðið var með sex stig og tíu mörk samanlagt í síðustu sex deildarleikjum sínum undir stjórn Jose Mourinho. Pogba átti ekki þátt í neinu þeirra og spilaði aðeins í 173 mínútur samnlagt í þessum sex leikjum. Hann hefur spilað í 180 mínútur í fyrstu tveimur leikjum Solskjær. Thomas Wilbacher, skrifar um ensku úrvalsdeildina fyrir sænska blaðið Expressen og hann lítur á norska stjórann sem góðan særingamann.I slutändan så handlar fotboll, hur mycket vi än försöker få det till något annat, om just det: Alla som inte vinner Community Shield eller Europa League är förlorare & i vår knallar män för andra gången sedan 70-talet återigen omkring med utsvängda byxor. https://t.co/zint474gFS — Thomas Wilbacher (@Wilbacher) December 26, 2018„Hvað getur Solskjær eiginlega hafa breytt miklu fótboltalega á þessum stutta tíma? Auðvitað hafa þessir tveir sigurleikir snúist lítið um fótboltalega getu hans eða liðsins. Frekar sé ég Solskjær sem særingamann sem var kallaður inn á Carrington æfingasvæðið og inn á Old Trafford til að losa félagið við illa anda Mourinho,“ skrifaði Thomas Wilbacher. „Það besta fyrir Solskjær er að hann kom til Manchester á góðum tímapunkti. Það vildu allir losna við Mourinho og leikjadagskráin var líka hagstæð enda mikið um leiki á móti lakari liðunum. Það mun koma tíma til að velta betur fyrir sér þjálfaraaðferðum Solskjær en eins og er þá snýst þetta mest um að búa til samstöðu og samhug innan Manchester United,“ skrifaði Wilbacher. „Nú geta allir stuðningsmenn United ekki beðið eftir næsta leik. Þeir geta þakkað særingamanninum Ole Gunnar Solskjær fyrir það,“ skrifaði Wilbacher. Það má finna allan pistil hans hér.
Enski boltinn Mest lesið Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Sport „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Enski boltinn Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Fótbolti Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Íslenski boltinn „Okkur var refsað fyrir það“ Enski boltinn Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport Valdimar fer ekki til Mexíkó Fótbolti Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Enski boltinn Þurfti að flauta af æfingar áður en hann slasaði menn Körfubolti Stækkaði typpi skíðastökkvara Sport Fleiri fréttir „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Sjá meira