Klopp: Ein okkar besta frammistaða Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 16. desember 2018 20:14 Klopp fangaði vel í leikslok vísir/getty
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool var að vonum hæstánægður með sigur sinna manna á erkifjendum sínum í Manchester United. Klopp segir að frammistaða Liverpool í dag hafi verið ein besta frammistaða liðsins undir hans stjórn. Liverpool eru enn ósigraðir í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en með sigrinum komust þeir á topp deildarinnar, en Liverpool er með eins stigs forskot á Manchester City. Xherdan Shaqiri tryggði sigur Liverpool í dag, en hann kom inn á af bekknum í stöðunni 1-1 og skoraði svisslendingurinn tvö mörk í leiknum. Þrátt fyrir að staðan hafi verið 1-1 í hálfleik, segir Klopp að fyrsti hálftími leiksins hafi verið fullkominn af hálfu Liverpool. „Þetta var frábær byrjun, ein besta frammistaða liðsins síðan ég kom til Liverpool ef ég á að vera hreinskilinn. Fyrsti hálftíminn var stórkostlegur, við spiluðum fullkomnlega,“ sagði Klopp. „Við vildum taka áhættur, vera hugrakkir og koma boltanum aftur fyrir öftustu varnarlínu. Ef þú hefðir getað teiknað upp mark, þá var fyrsta markið þannig. Frábær frammistaða, við áttum þetta fyllilega skilið. Stórkostlegt lið.“ „Ég held að Manchester United hafi ekki viljað spilað varnarsinnað, en við leyfðum þeim ekkert annað.“ Liverpool er í leit af sínum fyrsta deildartitli síðan 1990, og þrátt fyrir að Liverpool hafi aðeins eins stigs forskot á Manchester City er hann ekki að einblína á bláa liðið í Manchester-borg, heldur aðeins á sitt eigið lið. „Það breytist ekkert. Við getum ekki breytt planinu í hverri viku. Í dag mættum við Manchester United, við ræddum ekki í eina sekúndu um stöðuna í deildinni, eða Manchester City í gær. Hugsuðum ekkert um það.“ „Við vildum vinna þennan leik í dag, það var nóg. Við erum augljóslega með gott fótbolta lið. Við vissum það í upphafi tímabils. Við þurfum hins vegar að sanna það að við erum góðir, og við gerðum það í dag. Nú þurfum við að halda áfram að sanna það.“Klippa: Jurgen Klopp Post Match Interview
Enski boltinn Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira