Segir Grétar Rafn vera bolabít sem á að breyta leikmannakaupum Everton Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. desember 2018 10:57 getty/VI Images
Marcel Brands, yfirmaður knattspyrnumála hjá Everton, líkir Grétari Rafni Steinssyni við bolabít sem fer á eftir því að hann vill fá en Brands réði Grétar sem yfirnjósnara enska félagsins í Evrópu. Honum er ætlað stórt hlutverk þegar kemur að því að breyta leikmannakaupum Everton, að því fram kemur í viðtali við Brands í Liverpool Echo. Brands þekkir Grétar frá dögum þeirra hjá AZ Alkmaar en Hollendingurinn var yfirmaður knattspyrnumála þar þegar að Siglfirðingurinn spilaði fyrir félagið. Grétar gat sér gott orð sem yfirmaður knattspyrnumála hjá enska C-deildarliðinu Fleetwood en hann sagði starfi sínu lausu þar til að verða yfirnjósnari Everton í Evrópu. Hann er með sex njósnara undir sér, þar af einn í Suður-Ameríku.Í viðtali við Liverpool Echo segir Brands frá því hvernig Grétar Rafn á að hjálpa til við að endurbyggja leikmannaferlið hjá Everton því hann sér engan leikmann ómögulegan að fá en Brands er sömu skoðunar. „Hann er eins og bolabítur. Ef hann sér eitthvað sem að hann vill þá fer hann á eftir því. Við erum mjög líkir þegar að því kemur,“ segir Brands. „Ég vil hafa svona fólk í kringum mig því ég hef unnið með mörgum að leikmannakaupum sem segja að að hlutirnir séu ómögulegir. Það bjóst enginn við því að við myndum fá leikmenn frá Barcelona.“ „Ég vil hafa fólk í kringum mig sem trúir að svona hlutir geti gerst og Grétar er þannig maður. Hann er maður fólksins, liðsmaður, ekki með stórt egó og vill vinna með fólki. Hann byrjaði aðeins fyrir tveimur vikum en er nú þegar búinn að hitta þrjá njósnara því hann var að ferðast og þetta líkar mér,“ segir Marcel Brands.
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira