Bellamy ráðleggur Man Utd að nota Paul Pogba ekki á móti Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2018 09:30 Paul Pogba. Vísir/Getty
Paul Pogba var aftur í byrjunarliði Manchester United í Meistaradeildinni í gær en var ekki sannfærandi í 2-1 tapi á móti spænska liðinu Valencia. Craig Bellamy, fyrrum leikmaður Liverpool og knattspyrnusérfræðingur á Sky Sports, var ekki hrifinn af frammistöðu Frakkans í gær. „Poga var enn á ný slakur í kvöld,“ sagði Craig Bellamy í þættinum The Debate á Sky Sports. Sky segir frá. „Mourinho tekst ekki að ná því besta fram hjá honum, það er augljóst. Hann virkar áhugalaus. Ég hef áhyggjur af honum eftir þessa frammistöðu á móti Valencia,“ sagði Bellamy.Have @ManCity had the most impressive @ChampionsLeague campaign of the four English clubs? Get your questions in for Craig Bellamy and Stuart Pearce who join @GeoffShreeves live on Sky Sports Premier League now using #TheDebatepic.twitter.com/S3yXWbA2Ud — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) December 12, 2018„Ég er ekki viss lengur um að hann sé bara eins góður og sumt fólk vill halda fram,“ sagði Bellamy. „Hann hefur allavega ekki sannfært Mourinho um leyfa honum að spila á móti Liverpool með þessari frammistöðu. Það verður erfitt að rökstyðja það og ég ráðlegg honum það. Hann hlýtur að byrja með hann á bekknum,“ sagði Bellamy. Manchester United hefði unnið riðilinn sinn með sigri þar sem Juventus tapaði óvænt á móti Young Boys á sama tíma. Pogba var á bekknum í leiknum á undan þegar United vann sannfærandi 4-0 sigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Paul Pogba hefur byrjað á bekknum í síðustu tveimur deildarleikjum því hann var heldur ekki í byrjunarliðinu í 2-2 jafntefli á móti Arsenal. „Það er alltaf verið að tala um að hann hafi unnið HM síðasta sumar með franska landsliðinu en fyrir leikmann sem er vanur að spila í stórum leikjum þá er hann ekki á réttri leið. Hann er að leiðinni afturábak,“ sagði Bellamy.
Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Sjá meira