Sjáðu stemninguna í Kop-stúkunni þegar Liverpool skoraði sigurmarkið í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2018 10:30 Stuðningsmenn Liverpool og Divock Origi. Vísir/Samsett/Getty
Liverpool vann mjög dramatískan 1-0 sigur á nágrönnum sínum í Everton á Anfield í gær en eina mark leiksins kom ekki fyrr en á sjöttu mínútu í uppbótartíma. Margir stuðningsmenn Liverpool voru orðnir mjög pirraðir eftir 96 árangurslausar mínútur í leik þar sem ekkert nema þrjú stig dugði ætlaði liðið að hanga í toppliði Manchester City. Það mátti vel greina þennan pirring í The Kop stúkunni á lokaandatökum leiksins en stuðningsmaður Liverpool hefur nú gert opinbert magnað myndband sem var tekið ofarlega í Kop-stúkunni á síðustu sekúndum leiksins. Það er hægt að sjá þetta myndband hér fyrir neðan. Þar fer ekkert á milli mála að það var svakaleg stemning í Kop-stúkunni þegar Divock Origi skoraði sigurmarkið.'The daftest Derby goal of all time! And it's won the day for Liverpool! The place has gone berserk!' Here's Divock Origi's Derby winner from The Kop. More Post-Match Content - https://t.co/fg7T6PTpnHpic.twitter.com/oEhTkdBQqa — The Redmen TV (@TheRedmenTV) December 2, 2018Það er óhætt að segja að allir stuðningsmenn Liverpool hefðu viljað vera í Kop-stúkunni á þessum tímapunkti en geta nú upplifað þessa stund í gegn þessa magnaða myndband. Mikilvægi marksins er líka óumdeilanlegt en þetta var fyrsti leikur Divock Origi í ensku úrvalsdeildinni síðan í ágúst 2017. Það eykur á dramatíkina að hann hafði áður klikkað í dauðafæri og að hann fékk þetta mark á silfurfati frá Jordan Pickford, markverði Everton. Í stað þess að vera fjórum stigum á eftir Manchester City munar nú aðeins tveimur stigum á eftstu tveimur liðum ensku úrvalsdeildarinnar. Liverpool er með 36 stig og 22 mörk í plús en City-liðið er með 38 stig og 37 mörk í plús. Liverpool er síðan fimm stigum á undan Chelsea sem er í þriðja sætinu einu stigi á undan nágrönnum sínum í Arsenal. Tottenham er með jafnmörg stig og Arsenal en lakari markatölu.
Enski boltinn Mest lesið Slógu met sem Ísland er fegið að eiga ekki lengur Handbolti EM í dag: Fullkominn leikur fyrir Gumma Gumm Handbolti Ótrúleg sigurganga Luke Littler tók loks enda Sport „Ég er bara aumur aðstoðarþjálfari“ Sport Skýrsla Henrys: Sláturtíð í Kristianstad Handbolti Færeyingar fengu stig með hádramatískum hætti Handbolti Leiðtogar á reynslu: „Prófsteinninn verður þegar vesenið byrjar“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ítalíu: Her Napóleons gjörsigraður Handbolti Ungverjar ekki í vandræðum með Pólverja Handbolti Vikor Gísli rændur á tölfræðiblaðinu Handbolti Fleiri fréttir Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Mætir Liverpool en fær gæsahúð þegar hann heyrir „You'll Never Walk Alone“ Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Sjá meira