Sögusagnir um risatilboð Liverpool í Ousmane Dembélé Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2018 09:30 Ousmane Dembélé í leik með Barcelona. Vísir/Getty
Liverpool hefur mikinn áhuga á einum sóknarmanni Barcelona liðsins ef marka má sögusagnir sem blaðamenn Guardian hafa hlerað á síðustu dögum. Guardian segir í dag frá orðrómi um að Liverpool ætli að bjóða 85 milljónir punda í Ousmane Dembélé í janúar næstkomandi. Barcelona keypti Ousmane Dembélé fyrir 105 milljónir punda frá Borussia Dortmund árið 2017 en það hefur ekki gengið alltof vel hjá stráknum á Nývangi. Hann átti að fylla skarð Neymar en hefur verið langt frá því.Football transfer rumours: Liverpool to bid £85m for Ousmane Dembélé? https://t.co/nVXnbHddl9 — Guardian sport (@guardian_sport) November 14, 2018Ousmane Dembélé var engu að síður í heimsmeistarahóp Frakka síðasta sumar og hefur sýnt flott tilþrif inn á milli í leikjum með Barcelona. Ousmane Dembélé er líka ennþá aðeins 21 árs gamall og á því framtíðina fyrir sér í boltanum. Það eru líka vandræði á Ousmane Dembélé því hann var settur á bekkinn um síðustu helgi eftir að hafa skrópað á tvær æfingar. Samkvæmt fréttum á Spáni þá er ekki stefnan sú hjá Barcelona að losa sig við leikmanninn en það er hinsvegar vitað að Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er mikill aðdáandi og að þeim sökum muni Liverpool ætla að bjóða 85 milljónir punda í Dembélé á nýju ári. Liverpool hefur selt framherjana Luis Suarez og Philippe Coutinho til Barcelona á síðustu árum. Ousmane Dembélé er með 4 mörk í 11 leikjum í spænsku deildinni á þessu tímabili og 1 mark í 2 leikjum í Meistaradeildinni. Á síðustu leiktíð var hann með 3 mörk í 17 leikjum í deildinni og 1 mark í 3 leikjum í Meistaradeildinni.Ousmane Dembélé í leik á móti íslenska landsliðinu á dögunum.Vísir/Getty
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Kane lendir um helgina Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Sjá meira