Umboðsmaður Godin notaði Man. United til að redda betri samning Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2018 14:30 Diego Godin. Vísir/Getty
Óvæntustu fréttir dagsins voru örugglega þær þegar Diego Godin var orðaður við Manchester United. Fljótlega kom þó fram í dagsljósið að Godin væri búinn að gera nýjan samning við Atlético Madrid og væri því ekki á leiðinni til Englands. Dharmesh Sheth, fréttamaður Sky Sports, er búinn að grafa það upp hvað gerðist með Diego Godin og Manchester United. Samkvæmt honum var umboðsmaður Godon aðeins að nýta sér örvæntingu Manchester United til að pressa á nýjan samning við Atlético Madrid. „Umboðsmaður Godin var sá sem hafði fyrst samband við Manchester United í þessari viku og talaði þá um að leikmaðurinn sinn hefði áhuga á því að koma á Old Trafford og það væri möguleiki á samningi,“ sagði Dharmesh Sheth við félagsskiptavakt Sky Sports. „Samkvæmt mínum heimildum þá kom United með tilboð sem umboðsmaðurinn gat tekið með á stjórnarfund hjá Atletico. Aðeins nokkrum tímum seinna var Godin búinn að skrifa undir nýjan og betri samning við Atletico Madrid. Hann fær nú 7,5 milljónir evra í árslaun hjá Atletico,“ sagði Dharmesh Sheth. Það fer því ekkert á milli mála að umboðsmaðurinn var bara að reyna að fá betri samningstilboð frá Atlético Madrid sem tókst hjá honum. Diego Godin er búinn að vera hjá Atlético Madrid frá 2010 og er fyrirliði liðsins sem vann Evrópudeildina í vor.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira