Neville hefur aldrei þjálfað, sótti ekki um starfið og grínaðist með að berja konur Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. janúar 2018 08:30 Phil Neville var aðstoðarþjálfari bróður síns hjá Valencia en hann hefur aldrei verið aðalþjálfari. Vísir/Getty
Phil Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United og Everton, var í gær, ansi óvænt, ráðinn þjálfari enska kvennalandsliðsins sem er það besta í Evrópu samkvæmt styrkleikalista FIFA. Ráðningin þykir ansi sérstök í ljósi þess að Neville hefur aldrei áður verið aðalþjálfari og hann sótti ekki einu sinni um starfið. Það gerðu aftur á móti nokkrir öflugir aðilar eins og kom fram í frétt Guardian í síðustu viku. Samkvæmt The Guardian átti þekktur sjónvarpsmaður í Englandi hugmyndina um að ráða Neville en hún vaknaði eftir nokkra stífa í boði sem enska knattspyrnusambandið hélt í desember.„Var að berja konuna“ Það var þó ekki sú staðreynd að Neville hefur aldrei þjálfað eða að hann sótti ekki um starfið sem gerði allt vitlaust í Englandi í gær þegar að tilkynningin var send heldur voru gömul tíst nýja landsliðsþjálfarans af Twitter grafin upp. Þar fer Neville ófögrum orðum um konur og lítur vægast sagt illa út, sérstaklega í ljósi þess að nú er hann landsliðsþjálfari kvenna. Hann var fljótur að eyða Twitter-aðgangi sínum en þá voru menn löngu búnir að vista tístin. Það versta var frá 1. júlí 2011 en þá skrifaði Neville: „Kominn aftur, vel slakur - var að berja konuna og líður miklu betur núna.“ Hann svaraði einnig systur sinni, Tracey Neville, í desember 2012 þegar að hún skaut á hann fyrir að vera milljarðamæringur en vilja samt skipta reikningum í tvennt á veitingastöðum.Svarar í næstu viku „Þið konur viljið alltaf jafnrétti þangað til það kemur að því að borga reikninginn,“ sagði Neville og bætti við myllumerkinu #hræsnarar. Einn janúarmorgun árið 2012 vaknaði svo Neville og bauð bara karlmönnum góðan daginn og fékk greinilega eitthvað bágt fyrir það. Hann sendi þá út annað tíst sem hljóðaði svo: „Þegar að ég sagði góðan daginn menn hélt ég að konurnar væru of uppteknar að elda morgunmat, gera krakkana klára eða búa um rúmin. Afsakið. Góðan daginn, konur!“ Fram kemur í frétt Daily Mail að Phil Neville ætli ekki að svara fyrir þetta allt saman fyrr en í næstu viku þegar að hann verður formlega kynntur til leiks á blaðamannafundi enska sambandsins.
Enski boltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira