Innlent

Íhaldssemi ræður ríkjum meðal bókaþjóðarinnar

Jakob Bjarnar skrifar
Þessi tíu mega heldur betur vel við una en þau eru söluhæstu höfundar ársins 2017.
Þessi tíu mega heldur betur vel við una en þau eru söluhæstu höfundar ársins 2017.
Innbyggð íhaldssemi landsmanna birtist að einhverju leyti í bókakaupum bókaþjóðarinnar. Þau Arnaldur, Yrsa og Gunnar Helgason raða sér upp í efstu sæti árslista Bóksölulistans með nákvæmlega sama hætti og þau hafa gert undanfarin tvö ár.

Á tímabili leit út fyrir að Sólrún Diego, samfélagsmiðlastjarnan mikla, ætlaði sér að setja strik í reikninginn og vera það sem kallað hefur verið Svarti hestur jólabókaflóðsins. Sólrún var það að einhverju leyti en þegar upp er staðið hafnar hún í 8. sæti með bók sína „Heima“ – sem vissulega er frábær árangur höfundar sem er að senda frá sér sína fyrstu bók.

Bryndís Loftsdóttir leiðir Vísi í gegnum refilstigu bóksölunnar.
Vísir hefur, í samstarfi við Félag íslenskra bókaútgefenda, birt bóksölulista sem tekur til vikutímabils. Nú liggur fyrir heildarlisti, bóksölulistar ársins alls. Afar athyglisvert og skemmtilegt er að rýna í þessa lista. Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Fíbút, leiðir Vísi í gegnum þetta en fáir þekkja bóksölu eins vel og einmitt hún.

Ragnar Jónasson er hástökkvarinn

„Ragnar Jónasson fer úr fimmtánda sæti árslistans 2016 upp í fimmta sæti í ár og verður því að teljast einni helsti hástökkvari landsliðsskálda. Þorgrímur Þráinsson heldur sig við sautjánda sætið annað árið í röð en Stefán Máni fellur hins vegar úr áttunda sæti niður í það tólfta,“ segir Bryndís og setur upp lesgleraugun.

„Sé litið til skálda sem síðast sendu frá sér bækur fyrir tveimur árum þá var Ólafur Jóhann Ólafsson í fjórtánda sæti árið 2015 en stekkur nú upp í sjötta sæti, yfir Jón Kalman, sem þó er einnig á uppleið, fer úr tíunda sæti í það sjöunda.

Sé litið til mest seldu titlana má segja að hlutfall íslenskra skáldverka hafi verið hærra en undanfarin þrjú ár þar á undan, á kostnað annarra flokka.“

Með kynjagleraugun á nefinu

En, það er fleira matur en feitt kjet. Skoða má þessa lista út frá ýmsum sjónarhornum og nú þegar kynjafræðin virðist alpha og omega alls sem er á Íslandi er ef til vill vert að setja slíka mælistiku við listana, sem annað.

Hér getur að líta topplistann frá í fyrra.
„Í könnunum á vegum Félags íslenskra bókaútgefenda hefur komið í ljós að heldur fleiri karlmenn fá bækur í jólagjöf en konur,“ segir Bryndís, og heldur ótrauð áfram: „61 prósent karla fengu bók 2016 í jólagjöf en 54 prósent kvenna. Þegar kemur að jólagjafakaupum 2016 segjast 62 prósent karla hafa keypt bók og 66 prósent kvenna þannig að álíka margir karlar og konur eru að kaupa bækur til jólagjafa.“

Konur lesa meira en karlar

Þetta er athyglisvert og gengur að einhverju leyti gegn þeirri kenningu sem hefur verið ráðandi að konur stýri að verulegu leyti menninganeyslunni? Nei. Ekki alveg. Bryndís bendir á að konur kaupi hins vegar fleiri bækur til gjafa og teljast þannig öflugri kaupendur bóka.

Og konur lesa jafnframt meira en karlar. Þarna hafa konur sem sagt alltaf yfirhöndina,

segir Bryndís og sópar öllum efasemdum um ráðandi stöðu kvenna í menningargeiranum þar með út af borðinu. Og þó:

Karlar ráðandi meðal söluhæstu höfunda

„Þegar tíu söluhæstu bækur síðasta árs eru hins vegar kyngreindar þá eru átta eftir karlmenn og aðeins tvær eftir konur. Árið á undan voru hins vegar fjórar konur á meðal höfunda tíu mest seldu bókanna,“ segir Bryndís með nokkrum trega í röddinni.

Arnaldur seldi heilu brettin sem fyrr. Kóngurinn.
„Skiptingin skánar aðeins þegar litið er til tuttugu efstu titlanna, þar eiga konur sex bækur en áttu níu árið á undan. Þessar niðurstöður hljóta að vekja eftirtekt og kalla ef til vill á nánari greiningu og rannsóknum á markaðssetningu, umfjöllunum, kauphegðun og gæðum bóka íslenskra kvenna og afstöðu kaupenda til þeirra.“

Já, það var og.

Árslistinn 2017 – 20 söluhæstu titlar Bóksölulistans

  1. Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
  2. Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Amma best - Gunnar Helgason
  4. Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson
  5. Mistur - Ragnar Jónasson
  6. Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
  7. Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
  8. Heima - Sólrún Diego
  9. Útkall, Reiðarslag í Eyjum -   Óttar Sveinsson
  10. Syndafallið - Mikael Torfason
  11. Sönglögin okkar - Ýmsir/Jón Ólafsson
  12. Skuggarnir - Stefán Máni
  13. Með lífið að veði - Yeomne Park
  14. Þúsund kossar - Jóga - Jón Gnarr
  15. Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson
  16. Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir
  17. Henri hittir í mark - Þorgrímur Þráinsson
  18. Nornin - Camilla Läckberg
  19. Löggan - Jo Nesbø
  20. Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
Íslensk skáldverk

  1. Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
  2. Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Mistur - Ragnar Jónasson
  4. Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
  5. Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
  6. Skuggarnir - Stefán Máni
  7. Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir
  8. Elín, ýmislegt - Kristín Eiríksdóttir
  9. Ekki vera sár - Kristín Steinsdóttir
  10. Passamyndir - Einar Már Guðmundsson
  11. Smartís - Gerður Kristný
  12. Örninn og fálkinn - Valur Gunnarsson
  13. Búrið - Lilja Sigurðardóttir
  14. Refurinn - Sólveig Pálsdóttir
  15. Dalalíf IV - Guðrún frá Lundi
  16. Morðið í Gróttu - Stella Blómkvist
  17. Stúlkan sem enginn saknaði - Jónína Leósdóttir
  18. Aflausn - Yrsa Sigurðardóttir
  19. Í skugga drottins - Bjarni Harðarson
  20. Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir
Einn þeirra sem má vel við una er Mikael Torfason sem trónir efstur á lista í hinum eftirtektarverða flokki ævisagna.
Ævisögur

  1. Syndafallið - Mikael Torfason
  2. Með lífið að veði - kilja - Yeomne Park
  3. Þúsund kossar - Jóga - Jón Gnarr
  4. Konan í dalnum og dæturnar sjö - Guðmundur G. Hagalín
  5. Rúna - Örlagasaga - Sigmundur Ernir Rúnarsson
  6. Minn Tími - saga Jóhönnu Sigurðardóttur - Páll Valsson
  7. Með lífið að veði – innbundin -   Yeomne Park
  8. Gunnar Birgisson - Orri Páll Ormarsson
  9. Ekki gleyma mér - Kristín Jóhannsdóttir
  10. Það sem dvelur í þögninni - Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
 Barnabækur - skáldverk

  1. Amma best - Gunnar Helgason
  2. Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson
  3. Sönglögin okkar - Ýmsir/Jón Ólafsson
  4. Henri hittir í mark - Þorgrímur Þráinsson
  5. Flóttinn hans afa - David Walliams
  6. Jól með Láru - Birgitta Haukdal
  7. Verstu börn í heimi - David Walliams
  8. Vögguvísurnar okkar - Ýmsir/Jón Ólafsson
  9. Lára fer í sund - Birgitta Haukdal
  10. Bieber og Botnrassa - Haraldur F. Gíslason
Þýdd skáldverk

  1. Nornin - Camilla Läckberg
  2. Löggan - Jo Nesbø
  3. Sonurinn - Jo Nesbø
  4. Afætur - Jussi Adler-Olsen
  5. Litla bakaríið við Strandgötu - Jenny Colgan
  6. Eftirlýstur - Lee Child
  7. í skugga valdsins - Viveca Sten
  8. Litla bókabúðin í hálöndunum - Jenny Colgan
  9. Stúlkan sem gat ekki fyrirgefið - Stieg Larsson/David Lagercrantz
  10. Hús tveggja fjölskyldna - Lynda Cohen Loigman
Hinn vinsæli Ragnar Ingi gerði sér lítið fyrir og stendur uppi sem sigurvegari í flokki Ljóða og leikrita.
Ljóð & leikrit

  1. Gamanvísnabókin - Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman
  2. Dvalið við dauðalindir - Valdimar Tómasson
  3. Ljóð muna rödd - Sigurður Pálsson
  4. Heilaskurðaðgerðin - Dagur Hjartarson
  5. Íslensk öndvegisljóð - Páll Valsson
  6. Kóngulær í sýningargluggum - Kristín Ómarsdóttir
  7. Hreistur - Bubbi Morthens
  8. Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna - Silja Aðalsteinsdóttir valdi
  9. Bónus ljóð - Andri Snær Magnason
  10. Íslensk kvæði - Vigdís Finnbogadóttir valdi
Barnafræði- og handbækur

  1. Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson
  2. Geimverur - leitin að lífi í geimnum - Sævar Helgi Bragason
  3. Jólalitabókin - Bókafélagið
  4. Kvöldsögur fyrir uppreisnagjarnar stelpur - Elena Favilli/Francesca Cavallo
  5. Góðar gátur - Guðjón Ingi Eiríksson
  6. 13 þrautir jólasveinanna: jólaskemmtanir - Huginn Þór Grétarsson
  7. Brandarar og gátur 2 - Huginn Þór Grétarsson
  8. Hetjurnar á HM 2018 - Illugi Jökulsson
  9. Skrifum stafina - Jessica Greenwell
  10. Skafmyndalist - Setberg
Ungmennabækur

  1. Er ekki allt í lagi með þig? - Elísa Jóhannsdóttir
  2. Vertu ósýnilegur - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  3. Galdra Dísa - Gunnar Theodór Eggertsson
  4. Hvísl hrafnanna - Malene Sølvsten
  5. Sölvasaga unglings - Arnar Már Arngrímsson
  6. Vetrarfrí - Hildur Knútsdóttir
  7. Endalokin : Gjörningaveður - Marta Hlín Magnadóttir/Birgitta Elín Hassell
  8. Harry Potter og bölvun barnsins - J.K. Rowling
  9. Vetrarhörkur - Hildur Knútsdóttir
  10. Nei, nú ert'að spauga, Kolfinna - Hrönn Reynisdóttir
Sólrún Diego telst Svarti hestur jólabókaflóðsins og velgdi þeim Arnaldi og Yrsu undir uggum á stundum. Hún má vel við una í áttunda sæti á aðallistanum.
Fræði og almennt efni - að undanskildum matreiðslu- og handavinnubókum

  1. Heima - Sólrún Diego
  2. Útkall: Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson
  3. Til orrustu frá Íslandi - Illugi Jökulsson
  4. Hérasprettir - Baldur Grétarsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson
  5. Híf opp! Gamansögur af íslenskum sjómönnum - Guðjón Ingi Eiríksson
  6. Hönnun: leiðsögn í máli og myndum - Ýmsir
  7. Mamma: Hlý hugrenning fyrir hvern dag ársins - Pam Brown
  8. Þrautgóðir á raunastund - Steinar J. Lúðvíksson
  9. Vargöld á Vígaslóð - Magnús Þór Hafsteinsson
  10. Hrakningar á heiðavegum 2 - Pálmi Hannesson/Jón Eyþórsson
 Matreiðslu- og handverksbækur

  1. Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
  2. Átta vikna blóðsykurkúrinn - Dr. Michael Mosley
  3. Stóra bókin um sous vide - Viktor Örn Andrésson
  4. Gulur, rauður grænn & salt - Berglind Guðmundsdóttir
  5. Veisluréttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir
  6. Himneskt - að njóta - Sólveig Eiríksdóttir
  7. Matarást - Nanna Rögnvaldardóttir
  8. Jólaprjón - Guðrún S. Magnúsdóttir
  9. Heklaðar tuskur - C. S. Rasmussen/S. Grangaard
  10. Litla vínbókin - Jancis Robinson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×