Hodgson hrósaði myndbandsdómurum þó þeir væru ekki nýttir Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 8. janúar 2018 22:45 Roy Hodgson vísir/getty
Roy Hodgson hrósaði myndbandsdómarakerfinu eftir leik Brighton og Crystal Palace í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld, þrátt fyrir að það hafi ekki þurft að grípa til tækninnar í leiknum. „Við verðskulduðum jafntefli, en þeir settu Murray inn á og hann skoraði. Ég trúi því að þeir hafi skoðað þetta því það lítur út fyrir að boltinn fari í hendina á honum, en í endursýningu sést að það var ekki. Til hamingju með myndbandstæknina,“ sagði Hodgson, en hans menn í Crystal Palace töpuðu 2-1 og eru því úr leik í bikarnum. Glenn Murray skoraði sigurmark Brighton undir lok leiksins. Boltinn fór þá í hnéð á Murray og þaðan í markið, en við fyrstu sín hefði mátt ætla að það hafi verið hendi Murray en ekki hnéð sem kom boltanum yfir marklínuna. Andre Marriner, dómari leiksins, notaði myndbandstæknina þó ekki í leiknum, að minnsta kosti ekki með þeim formlega hætti að stoppa leikinn og fá að skoða atvikið. Hann hefur þó líklega ráðfært sig við þá sem horfðu á leikinn í gegnum sjónvarpsskjái áður en hann dæmdi markið gilt. „Ég vona að myndbandsdómarakerfið hafi hjálpað til í þessu tilfelli. Vonandi tók það rétta ákvörðun. Það virkaði vel, þeir ákváðu að markið ætti að standa og ég get ekki mótmælt því,“ sagði Roy Hodgson.
Enski boltinn Tengdar fréttir Hodgson efins um myndbandsdómara Myndbandsdómarar verða notaðir í fyrsta skipti í keppnisleik félagsliða á Englandi á mánudaginn þegar Crystal Palace mætir Brighton í úrvalsdeildarslag í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar. 5. janúar 2018 11:00 Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Íslandsmeistarinn einbeittur Sport Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea - Bournemouth | Sækir Chelsea loksins sigur? Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Sjá meira
Hodgson efins um myndbandsdómara Myndbandsdómarar verða notaðir í fyrsta skipti í keppnisleik félagsliða á Englandi á mánudaginn þegar Crystal Palace mætir Brighton í úrvalsdeildarslag í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar. 5. janúar 2018 11:00