Kópavogur rukkar rúman milljarð vegna leigu á íþróttamannvirkjum Benedikt Bóas skrifar 14. febrúar 2018 10:00 Það hefur verið ýmislegt verið gert í Kórnum; stórtónleikar, fótbolti, landsleikir og nú síðast amerískur fótbolti.
Íþróttafélögum í Kópavogi verður von bráðar sendur reikningur vegna leigu af íþróttamannvirkjum bæjarins fyrir árið 2017. Er heildarreikningurinn rétt yfir milljarði króna. Það er á grundvelli reglna íþróttaráðs Kópavogs um afnot af íþróttamannvirkjum frá 2015 sem þetta er gert. Á móti reiknaðri leigu kemur síðan styrkur frá íþróttaráði að sömu fjárhæð til viðkomandi íþróttafélags, sem skal færa sem styrk á móti reiknaðri leigu í ársreikningum félaganna. „Þetta er í raun bókhaldsleg aðgerð hjá bænum og hefur engin áhrif á reksturinn,“ segir Sigurjón Sigurðsson, formaður HK, en félagið er rukkað um hæstu upphæðina, um 460 milljónir króna, og fær því hæsta styrkinn á móti.Breiðablik fær silfrið og er rukkað um 412 milljónir. Golfklúbburinn GKG fær 5,5 milljónir í rukkun og styrk en golfklúbburinn nýtur góðs af því að sækja styrki til bæði Kópavogs og Garðabæjar. Í bæjarráði Garðabæjar í gær var samþykkt að fella niður sjö og hálfrar milljón króna fasteignagjöld. Sigurjón segir að þessum peningum sé ekki illa varið enda sé íþróttastarf í Kópavogi blómlegt. „Eigum við ekki að segja að íþróttastarfið sé eitt af því sem laði skattgreiðendur að Kópavogi. Trúlega þess vegna sem flest allt ungt fólk er að flytja í Kópavog. Hér eru góðir skólar, frábært íþróttastarf og ýmislegt fleira. Börn geta gengið í íþróttastarfið og það er metnaður í bænum að gera vel. Þessar tölur eru bókhaldslega réttar en þetta segir ekkert um hve mikið af styrkjum við fáum í okkar afreksstarf til dæmis.“ Sigurjón segist í skýjunum með aðstöðuna sem HK hefur í Kórnum og bendir á að nýtt gervigras sem lagt var á völlinn hafi komið vel út. „Þetta er geggjuð aðstaða. Þetta er ekki eins og í gamla daga þar sem æft var á möl og allt var frosið. Það er einhver ástæða fyrir þessari velgengni fótboltans,“ segir hann kampakátur.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tindastóll - Stjarnan | Sópur í Síkinu? Körfubolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Atlético - Arsenal | Skytturnar í Madríd Fótbolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Fleiri fréttir Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Tindastóll - Stjarnan | Sópur í Síkinu? Breiðablik - Fram | Heimsækja meistarana Stjarnan - Valur | Hörkuleikur í Garðabæ Atlético - Arsenal | Skytturnar í Madríd Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Verður Elvar liðsfélagi Hauks? Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Besta sætið: Skjálfti í Síkinu Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Heimsmeistari mætir og ætlar að slá met í Dyrfjallahlaupinu „Það væri óskastaðan“ Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Evrópskt stórlið með augu á Degi Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Dagskráin í dag: Stjarnan með sóp á Króknum og Arsenal slæst við Atlético Sjá meira