Rashford: Mætum til að vinna Smári Jökull Jónsson skrifar 15. desember 2018 08:00 Marcus Rashford fagnar með Ashley Young. Vísir/Getty
Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, segir að Liverpool sé ekki sigurstranglegra liðið fyrir viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Liverpool er í efsta sæti deildarinnar og hefur enn ekki tapað leik. Manchester United er í 6.sætinu, 16 stigum á eftir Liverpool. „Við erum ekki að fara þangað sem ólíklegri aðilinn, ég held að við séum að fara þangað til að vinna líkt og í öllum öðrum leikjum," sagði Rashford í samtali við Sky Sports. „Þeir eru með gott lið, ákefðin í þeirra leik gerir það að verkum að það er erfitt að spila gegn þeim en við verðum að mæta tilbúnir. Það er mikilvægt að við einbeitum okkur að sjálfum okkur, sjá hvort við getum ekki sært þá og skorað mörk." Aðspurður hvort þjálfarinn, Jose Mourinho, væri öðruvísi í undirbúningi fyrir stórleiki sagði Rashford að það væri erfitt að finna ekki spenninginn og eftirvæntinguna fyrir leikinn en bætti við að Mourinho væri einbeittur í að vinna sigur. „Ég held að hann sé aðeins öðruvísi, líkt og við allir þegar líður að svona stórum leikjum. Það er mikill spenningur í loftinu og líkt og aðrir eigum við erfitt með að fela það." „Hann er sigurvegari og er aðeins að hugsa um að vinna, hvernig við eigum að vinna og hvað við þurfum að gera til þess að vinna. Að ná í þrjú stig er það sem skiptir máli."Leikur Liverpool og Manchester United er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD á morgun klukkan 16:00.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira