Lögðu hald á 16 kíló af kókaíni á fyrstu sjö mánuðum ársins Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 14. ágúst 2017 11:13 Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins og eru um 20 sakamál nú þegar á borði lögreglunnar Vísir/Hari
Alls hefur verið lagt hald á um 16 kíló af kókaíni af mismunandi styrkleika á fyrstu sjö mánuðum ársins á Keflavíkurflugvelli og 1.950 ml af fljótandi kókaíni eða um 4.500 grömm í neyslustyrkleika. Talið er að þetta sé mesta magn kókaíns sem lagt hefur verið hald á Keflavíkurflugvelli. Tollgæslan hefur lagt hald á mun meira magn af fíkniefnum á fyrstu sjö mánuðum ársins 2017 en á sama tíma á síðasta ári. Efnin hafa öll fundist innvortis eða í farangri farþega á leið um Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins og eru um tuttugu sakamál nú þegar á borði lögreglunnar. Sakborningarnir í þeim málum voru erlendir ríkisborgarar í nánast öllum tilvikum. Þeir sitja nú í gæsluvarðhaldi. Þá hafa dómar þegar fallið í fimmtán málum og hafa menn verið dæmdir í allt að þriggja og hálfs árs fangelsi. Einnig voru handlagðir 700 ml af fljótandi amfetamíni en það samsvarar um 6.998 grömmum af efninu í neyslustyrkleika. Þá var lagt hald á 196,5 grömm af metamfetamíni og 0,19 grömm af hassi. Efnin hafa verið gerð upptæk. „Þetta er töluvert meira heldur en á síðasta ári,“ segir Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Hann segist ekki vera með tölfræðina fyrir framan sig en þó sé mest áberandi hversu algengt kókaínið sé orðið til innflutnings enda sé það oftast handlagt. Þá bendir hann á að þá skipti einnig máli að um breytilegan styrkleika sé að ræða en það geti þýtt að neysluskammtar hvers fíkniefnis geti verið mismunandi þar sem hægt sé að þinna efnið út.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Innlent Fleiri fréttir Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Sjá meira