Mótmælendur skoruðu á Pútín að hætta Anton Egilsson skrifar 29. apríl 2017 18:42 Vladimir Pútín Rússlandsforseti. Vísir/AFP
Hundruð mótmælenda komu saman í Moskvu, höfuðborg Rússlands, í dag í því skyni að skora á forseta landsins, Vladímír Pútín, að bjóða sig ekki fram til endurkjörs í forsetakosningunum sem fram fara á næsta ári. Um friðsæl mótmæli var að ræða. „Ekkert jákvætt hefur gerst í landinu okkar á hans vakt og ég hef þá tilfinningu að hlutirnir eigi bara eftir að versna. Aðal vandamálið er sú staðreynd að þeir sömu eru alltaf við völd,” sagði einn mótmælandanna í samtali við fréttaveituna Reuters. Hreyfingin Open Russia stóð fyrir mótmælunum en þau báru yfirskriftina „Við erum komin með nóg af honum“. Stofandi hreyfingarinnar er Mikhail Khodorkovsky en hann var eitt sinn auðugasti maður Rússlands og einn auðugasti maður veraldar. Khodorkovsky sat á bak við lás og slá í um áratug fyrir fjárdrátt og skattsvik áður en hann var náðaður af Pútín árið 2013. Mál Khodorkovsky var mikið gagnrýnt á sínum tíma en stuðningsmenn hans hafa ávallt haldið því fram að ásakanir á hendur honum hafi verið af pólitískum toga en hann féll í ónáð hjá Pútín þegar hann styrkti stjórnarandstöðu landsins fjárhagslega. Pútín sem hefur ráðið lögum og lofum í rússneskum stjórnmálum síðastliðin sautján ár, bæði sem forseti og forsætisráðherra, hefur enn ekki gefið það út hvort að hann hyggist bjóða sig fram í forsetakosningunum í Rússlandi sem fram fara í mars á næsta ári. Það er þó gert sterklega ráð fyrir því að hann muni bjóða sig fram en hann nýtur mikils fylgis í heimalandinu.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira