Jafnrétti snýst ekki um að allar konur eigi að verða forstjórar eða framkvæmdastjórar Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 15. febrúar 2017 09:45 Ragnhildur Steinunn og Edda Hermannsdóttir munu fagna á morgun. Vísir/GVA „
Við munum fagna útgáfu bókarinnar á Oddsson á morgun 16. Febrúar og skála í freyðivíni með góðu fólki. Edda ætlar að standa í ströngu við kökubakstur ásamt móður sinni og Eva Laufeyju systur sinni á meðan ég, bindindismanneskjan, mun ferma áfengi frá Vífilfelli vestur í bæ, segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og hlær, en hún ásamt Eddu Hermannsdóttur, gefa út bókina Forystuþjóð á morgun. „Við elskum báðar að halda veislur og getum því ekki beðið eftir því að skála með öllum viðmælendum bókarinnar og okkar góða fólki. Þetta stefnir í gott partý! Bókin er gefin út í samstarfi við Samtök atvinnulífsins. Halldór Benjamín, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ætlar því að ávarpa gesti með okkur. Eftir útgáfuhófið ætlum við svo að borða góðan mat á Oddsson og slaka á,“ segir Edda. Forystuþjóð er viðtalsbók þar sem yfir þrjátíu valinkunnir Íslendingar deila skoðunum sínum, reynslu og árangri í jafnréttismálum. „Okkur tókst að draga konur og karla inn í umræðuna sem hafa ekki tjáð sig um þessi mál áður opinberlega og viðtölin eiga eftir að hrista upp í umræðunni. Við veltum fyrir okkur íslensku tungunni og hvort hún sé hliðholl öðru hvoru kyni, ræðum fæðingarorlof, kynjakvóta, líffræðilegan mun kynjanna, áhrif samfélagsmiðla á jafnréttis umræðuna og allt þar fram eftir götum, segir Ragnhildur Steinunn. „Tilgangur bókarinnar er því að vekja okkur til umhugsunar og hrista upp í hugmyndum okkar um jafnrétti. Það vilja allir hafa jafnrétti en fólk er ósammála hvernig best sé að ná því takmarki, segir Edda. Hugmyndin af bókinni kviknaði þegar stelpurnar sátu á fundi þar sem nokkrir karlar viðruðu skoðanir sínar á jafnréttismálum. „Þar heyrðum við rödd sem okkur fannst sjaldheyrð. Umræðan um jafnrétti kynjanna hefur verið fremur einsleit og okkur fannst tími til komin að gefa fleirum pláss, líka þeim sem hafa skoðanir sem samræmast ekki ráðandi viðhorfum. Það hefur gríðarlega mikið áunnist í jafnréttismálum síðustu ár, við erum svo sannarlega í forystuhlutverki þegar kemur að þessum málaflokki. En þrátt fyrir það er enn margt óunnið. Jafnrétti snýst ekki um það að allar konur eigi að verða forstjórar eða framkvæmdastjórar. Það snýst um það að konur og karlar meti hvort annað að eigin verðleikum óháð kyni og að kynin standi jafnfætis hvað varðar þau tækifæri sem bjóðast, segir Ragnhildur Steinunn og bætir við að jafnréttismál séu okkar allra og að þau séu skemmtileg. Með bókinni vildu þær skapa samtal milli kynjanna því þetta er ekki bara kvennamál. Ragnhildur og Edda kynntust í Gettu betur árið 2011, en þá var Edda að stíga sín fyrstu skref í sjónvarpi. „ Ég þekkti lítið til innan RÚV og leitaði til Ragnhildar Steinunnar sem var meira en til í ráðleggja mér og var til staðar í einu og öllu sem var mjög dýrmætt á þeim tíma. Eftir þetta urðum við miklar vinkonur og nágrannar þar að auki. Það hefur því verið mikill samgangur, hvort sem það tengist umræðu um vinnu eða annað, segir Edda. Spurðar út í hvort þær hafi fundið fyrir ójafnrétti á sínum vinnustöðum segjast þær eflaust báðar fengið tækifæri vegna þess að þær eru konur. „ Við finnum fyrir því að stjórnendur eru meðvitaðri um að fjölbreyttur hópur er vænlegri til árangurs. Við erum við þó sammála um að hafa oft og tíðum þurft að hafa meira fyrir því að sanna að sanna okkur af því að við erum ungar konur,“ útskýra þær. Ár er frá því þær hófu að skrifa bókina, en þær fengu ljósmyndarann Írisi Dögg Einarsdóttur til liðs við sig. „Hún tók sterkar og flottar ljósmyndir af viðmælendum og landslagi sem við notum á skemmtilegan hátt. Við nýttum sumarfríið í þetta og svo hefur þetta verið helgar og kvöld vinna þar sem við erum báðar í fullu starfi. Þetta hefur verið virkilega skemmtilegt ferli. Að auki gefum við bókina sjálfar út þannig að þetta hefur líka verið heilmikill lærdómur fyrir okkur. En við erum orðnar vanar því að byrja alla daga á símtali og heyrast svo fyrir svefninn, segja þær hlæjandi.
Mest lesið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Fleiri fréttir Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Sjá meira