Fjölmenntu þrátt fyrir landsleik í fótboltanum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. september 2017 10:15 "Við viljum stuðla að samfélagi þar sem konur og karlar standa jafnfætis og bjóðast sömu tækifæri,“ segir Sigyn. Vísir/Eyþór Árnason
Við vorum að kynna dagskrá vetrarins sem er þéttpökkuð fjölbreyttum fyrirlestrum, málstofum, námskeiðum og ýmsum viðburðum sem hvetja félagskonur til dáða og veita þeim innblástur,“ segir Sigyn Jónsdóttir, formaður Ungra athafnakvenna, hressilega. Þar er hún að tala um fyrsta viðburð félagsins á þessu starfsári sem haldinn var í Ráðhúsinu síðasta þriðjudag. „Það mættu um 150 manns, sem var framar öllum vonum því það var landsleikur í fótbolta á sama tíma milli Íslands og Úkraínu! Vissulega voru konur í miklum meirihluta en nokkrir karlar höfðu líka áhuga.“ Sigyn starfar sem verkefnastjóri og sérfræðingur í Seðlabankanum, í deild sem heitir Fjármálainnviðir, og er líka mentor hjá Startup Reykjavík á sumrin. Hún tók við formannsembætti Ungra athafnakvenna fyrir skemmstu og er full eldmóðs. „Við viljum stuðla að framþróun í samfélaginu og gera stjórnendum og leiðtogum ljóst hvaða tækifæri felast í því að efla ungar konur. Gera fólki grein fyrir kröftum kvenna sem vilja verða leiðtogar,“ lýsir hún.Stjórn félagsins skipa þær Elísabet Erlendsdóttir, Anna Berglind Jónsdóttir, Andrea Gunnarsdóttir, Ásbjörg Einarsdóttir, Sigyn Jónsdóttir og Helena Rós Sturludóttir.Félagið var stofnað 2014, og á fyrsta fundinn mættu um 200 manns, að sögn Sigynjar. „Það var gríðarlegur áhugi. Í fyrra voru skráðar í kringum 250-300 í félagið og við erum að taka við nýskráningum. Vorum reyndar að breyta vefsíðunni okkar, uak.is, þannig að allir þurfa að skrá sig upp á nýtt núna,“ lýsir hún. En þarf fólk að hafa sannað sig á einhvern hátt í atvinnulífinu til að hafa möguleika á ganga í félagið? „Nei, það eru hvorki inntökuskilyrði né aldurstakmark. Þó að félagið heiti Ungar athafnakonur þá er það þannig að þær sem finna sig í starfsemi félagsins eru velkomnar á hvaða aldri sem þær eru.“ Meðal þess sem fram undan er núna, að sögn Sigynjar, eru panelumræður um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, bíókvöld og fyrirlestrar um launamál og starfsþróun. „Svo ætlum við að halda UAK-dag í vor með ráðstefnu í Hörpu sem helguð verður ungum konum í athafnalífinu.“
Mest lesið Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni Lífið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Tónlist Fjögurra ára rússíbanareið að baki Menning Norski stigakynnirinn hættir við Lífið Spáir Ísrael sigri í Eurovision Lífið „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar Lífið „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Lífið Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Tónlist Fleiri fréttir Eurovision-vaktin: Von á dramatísku kvöldi í Malmö Norski stigakynnirinn hættir við Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Spáir Ísrael sigri í Eurovision „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn Sjá meira