Skógræktin til skjalanna og grenilundi á Þingvöllum þyrmt Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. ágúst 2017 06:00 Trén við gamla sumarbústaðinn næst Valhallarreitnum sleppa við að verða upprætt í bili að minnsta kosti. vísir/gva
Ekkert verður af því að trjálundur sem stendur umhverfis sumarbústað næst Valhallarreitnum á Þingvöllum verði upprættur eins og til stóð. Ríkið keypti í fyrrahaust sumarbústaðinn sem um ræðir. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í febrúar síðastliðinn sagði Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður í bréfi til forsætisráðuneytisins að ætlunin væri að rífa húsið og „uppræta greniskóg sem er á lóðinni og hefur slæm sjónræn áhrif og opna aðgang að henni fyrir almenning“. Sex dögum síðar gagnrýndi Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri Skógræktarinnar, áformin harðlega í Fréttablaðinu. Og nú virðist vera fallið frá því að „uppræta“ trén. „Við kölluðum Skógrækt ríkisins til ráðuneytis og samstarfs um að grisja reitinn við Valhallarplanið og var byrjað lítillega á því í sumar samkvæmt þeirra tillögum,“ svarar þjóðgarðsvörður spurður um stöðuna á trjágróðrinum.Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri.Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri segir að úlfaldi hafi verið gerður úr mýflugu því þótt staðið hafi „í einhverju plaggi með rökstuðningi fyrir að kaupa bústaðinn“ að fjarlægja ætti trén þá hafi ekki verið um nein útfærð plön af hálfu þjóðgarðsins að ræða. Skóginn þurfi þó að grisja. Áætlun um það sé ekki tilbúin en verði gerð út frá umhverfisþáttum eins og útsýni. „Ef 40 metra hátt sitkagrenitré er fyrir þriðjungi af útsýni á Hakinu er spurning hvort tréð eigi að vera áfram eða útsýnið,“ útskýrir Þröstur. Þótt grenið sé núna fimmtán metra hátt og langt í að það nái fjörutíu metra hæð þá geti það gerst. Horfa þurfi langt fram í tímann. „Við erum ekki að tala um að gera þetta á næstu árum.“ Tré sem teljast af erlendum uppruna eru á fleiri stöðum í Þingvallaþjóðgarði og sumum finnst þau falleg. „Fólk gróðursetti tré í þjóðgarðinn vegna þess að því fannst það vera að gefa landinu betri gróður heldur en var þar áður – af því að birkikjarrið var bara talið vera rusl,“ segir Þröstur. Engar öfgar séu gagnvart þessum erlendu trjám í Þingvallaþjóðgarði. „Að minnsta kosti ekki eins og í gamla daga þegar sumir vildu ganga hart fram og fjarlægja öll útlensku trén á Þingvöllum.“ Skógræktarstjóri segir að til framtíðar séu valmöguleikarnir tveir. „Ef við gerum ekkert þá munu þessi tré sá sér og breiðast út. Þau munu vaxa upp úr birkikjarrinu og koma í staðinn fyrir það. Það er ekki vilji núna til þess að það fái að gerast óhindrað, hvorki hjá þjóðgarðinum né hjá Skógræktinni. Af því að einmitt á þessum stað, í þjóðgarðinum, er í sjálfu sér eðlilegt að halda svolítið upp á birkikjarrið.“ Eðlileg framtíðarstefna sé því sú að útlensku trén hverfi á endanum úr þjóðgarðinum. „Smám saman verða útlensku trén fjarlægð þegar eðlilegt þykir; grisjuð eðlilega, felld þegar þau eru komin á aldur og ekki leyft að breiðast út,“ segir skógræktarstjórinn. Lundurinn er talsvert mikill um sig þar sem stendur neðan Haksins á Þingvöllum.vísir/garðar
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni Sjá meira