Brotið á réttindum norsks blaðamanns Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 7. október 2017 06:00 Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg. Nordicphotos/AFP
Cecilie Becker, norskur blaðamaður á vefmiðli dagblaðsins Dagens Nœringsliv, vann á fimmtudag tjáningarfrelsismál gegn norska ríkinu fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Henni hafði verið gert að bera vitni í markaðsmisnotkunarmáli sem höfðað var gegn heimildarmanni hennar. Ágreiningi um vitnisburð hennar lauk með dómsúrskurði þar sem henni var gert skylt að bera vitni. Í úrskurðinum var sérstaklega bent á að engin ástæða væri lengur til að halda heimildarmanninum leyndum þar sem heimildarmaðurinn hafði þegar greint lögreglu frá samskiptum sínum við blaðamanninn. Þegar úrskurðurinn féll var hins vegar þegar búið að sakfella manninn fyrir markaðsmisnotkun og því kom aldrei til vitnisburðarins. Í niðurstöðu Mannréttindadómstólsins var bent á að neitun hennar á að gefa upp heimildarmann sinn, hindraði á engan hátt rannsókn málsins enda tókst að upplýsa það án vitnisburðar hennar. Mannréttindadómstóllinn taldi að brotið hefði verið gegn rétti blaðamannsins til að halda heimildarmanni sínum leyndum í andstöðu við 10. gr. Mannréttindasáttmálans um tjáningarfrelsi. Þennan rétt blaðamanna mætti hvorki skerða með vísan til háttsemi heimildarmannsins sjálfs eða þess að upp hefði komist hver hann væri.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Fleiri fréttir „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Sjá meira