Varað við aukinni skjálftavirkni á Hellisheiði vegna framkvæmda Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 6. september 2017 06:00 Aldís Hafsteinsdóttir
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, fulltrúa Orkustofnunar og fulltrúum sveitarfélaganna Ölfuss og Hveragerðis hefur verið sent erindi vegna aukinnar hættu á jarðskjálftavirkni samfara fyrirhugaðri niðurdælingu í borholur á virkjanasvæðinu á Hellisheiði. Í matsskýrslu Íslenskra orkurannsókna er reiknað með að skjálftavirkni verði einhverju minni en í fyrri lotum, en þó megi reikna með að stöku skjálftar geti farið yfir 3 Mi að stærð og muni finnast í byggð. Óþægindi ættu þó ekki að vera teljandi og eignatjón mjög ólíklegt, segir í skýrslunni. „Þetta er gert í fullu samráði við alla hlutaðeigandi,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, sem fylgist vel með skjálftavirkninni. Um er að ræða niðurdælingu í svokallaða HE 55 holu í Hverahlíð sem boruð var sem vinnsluhola en nýta á sem niðurdælingarholu. Samkvæmt niðurstöðu fyrrnefndrar matsskýrslu fylgir henni óveruleg hætta á finnanlegum jarðskjálftum í byggð. Niðurdæling á Gráhnjúkasvæðinu veldur einnig óverulegri hættu á aukinni skjálftavirkni, en á Húsmúlasvæðinu er hins vegar talin hætta á að aukin losun vegna hækkaðs þrýstings kunni að leiða af sér aukna og finnanlega jarðskjálftavirkni. Hækkun á þrýstingi þar fer í gang á næstu dögum, segir Eiríkur Hjálmarsson, talsmaður Orku náttúrunnar. Hengilssvæðið er eldvirkt og skjálftavirkni þekkt óháð framkvæmdum. Hins vegar varð aukinnar skjálftavirkni strax vart þegar niðurdæling við Húsmúla hófst í september 2011. Heildarfjöldi skjálfta á áhrifasvæði niðurdælingarinnar er tæplega 10.000 skjálftar frá upphafi mælinga árið 1995, en rúmlega 8.000 skjálftar hafa mælst frá því niðurdæling hófst við Húsmúla 2011. Þrátt fyrir að um virkt svæði sé að ræða er náttúruleg spennusöfnun ekki eins ör og hún var áður en niðurdæling hófst á svæðinu. Samkvæmt niðurstöðu matsskýrslunnar er ástæðan sú að niðurdæling sem veldur jarðskjálftavirkni leysir spennuna að einhverju leyti út jafnóðum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira