Stefnir Icelandair vegna uppsagnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. september 2017 06:00 Konan hafði sagt upp fyrri vinnu til þess að geta hafið störf hjá Icelandair. Lögmaður hennar segir að hún hafi upplýst fyrirtækið um sjúkdóminn strax í upphafi. Engar athugasemdir hafi verið gerðar fyrr en seinna. VÍSIR/VILHELM
Ungri konu sem sótt hafði starfsþjálfun hjá flugfélaginu Icelandair haustið 2015 var vikið burt eftir að hún hafði lokið undirbúningi fyrir starfið. Konan hefur nú stefnt flugfélaginu vegna brottvikningarinnar. Gísli Tryggvason, lögmaður konunnar, segir hana hafa sótt um starf flugfreyju og tekið fram strax í upphafi að hún væri með taugasjúkdóm sem haldið væri niðri með lyfjum og hún væri því einkennalaus. „Það var ekki gerð athugasemd við það. Síðan löngu síðar verður breyting á,“ segir Gísli, en í millitíðinni hafði hún fengið skriflega staðfestingu um starfið. Gísli útskýrir að þegar liðið var á fyrri hluta námskeiðsins hafi hjúkrunarfræðingur á vegum Icelandair haldið fyrirlestur um viðbrögð við heilsubresti farþega. Þar var meðal annars til umfjöllunar flogaveiki. Í kjölfar fyrirlestrarins gekk unga konan á fund hjúkrunarfræðingsins og upplýsti að hún væri greind flogaveik og tæki lyf við sjúkdómnum. Þá spurði konan hvort sjúkdómurinn hefði einhver áhrif á störf hennar hjá Icelandair, sem hjúkrunarfræðingurinn svaraði neitandi með vísan í það að konan hafi ekki fengið flogakast í meira en fimm ár. En síðar var konunni sagt að hún fengi ekki starf hjá fyrirtækinu. „Þetta snýst um starfsgengisskilyrði fólks með einkennalausa greiningu og hins vegar snýst þetta um hvernig Icelandair stendur að upplýsingaskyldu og starfslokum,“ segir Gísli. Hann segir þetta ígildi uppsagnar og ekki hafi náðst samkomulag um upphæð bóta. Hann bendir jafnframt á að konan hafi sagt upp fyrra starfi sínu fyrir starf hjá Icelandair. Konan leggur fram kröfu vegna launa í starfsnámi, vegna vangoldinna launa, vegna launa á uppsagnarfresti og vegna greiðslu útlagðs kostnaðar. Þá er krafa vegna greiðslu skaða- og miskabóta.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira