Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svindli á bílasölusíðum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 10. ágúst 2017 18:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við netóværu. vísir/eyþór
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur borist fjölmargar tilkynningar um netóværu frá fólki sem selur bíla í gegnum sölusíður á netinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan segir svindlið flokkast undir svokallað traustsvindl þar sem notast er við samfélagsmiðla (e. Confidence scam). Svindlið felur í sér að seljanda berast einkennileg tilboð, annað hvort frá fólki í útlöndum eða frá fólki sem fullyrðir ranglega að það sé frá Íslandi. Í skilaboðunum kemur fram að viðkomandi vilji ólmur kaupa bílinn og að hann sé tilbúinn að greiða fyrir bílinn uppsett verð. Þá er þess krafist að greiðslan fari í gegnum greiðsluþjónustu á borð við Paypal. Seljandinn fær þá staðfestingu um greiðslu sem þó hefur aldrei átt sér stað því skjölin eru fölsuð. Í framhaldinu segist „kaupandinn“ hafa greitt of mikið og að hann vilji fá mismuninn endurgreiddan. Það er í þessum lið sem svindlið liggur, að sögn lögreglunnar, því eigandi bílsins hefur ekki fengið krónu greidda þegar skilaboðin eru send og tapar hann fjárhæðinni ákveði hann að endurgreiða hinum óprúttna aðila mismuninn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur rétt að vara við þessu og að endingu biðlar hún til fólks sem lendir í svindlinu að hafa samband. Ákjósanlegast er að það hafi samband í gegnum Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða sendi skilaboð á tölvupóstfangið abendingar@lrh.is.
Mest lesið Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Innlent „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Innlent Fleiri fréttir Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Nikótínþurfi guðsbarn braust inn í Bjarnabúð „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Sjá meira