Yfir 13 þúsund manns skráðir í maraþonið Sæunn Gísladóttir skrifar 18. ágúst 2017 15:15 Reykjavíkurmaraþonið er hápunktur sumarsins í huga flestra hlaupara og hefur fyrir löngu skapað sér fastan sess í borgarlífinu. Vísir/Hanna
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á morgun en yfir 13 þúsund hlauparar munu taka þátt. Að sögn Eyrúnar Huldar Harðardóttur, verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons hjá Íslandsbanka, höfðu í gær yfir 13 þúsund manns skráð sig til þátttöku. Þeir hlauparar hafa safnað rúmlega 86 milljónum króna til góðgerðarmála þegar þetta er skrifað. „Skráningar ganga alveg frábærlega. Í gær voru rúmlega 13 þúsund manns skráðir í hlaupið. Það er hægt að skrá sig í Laugardalshöllinni í dag og verður opið þar til sjö. Hlaupastyrkur er á fullu flugi, við erum komin langt yfir 80 milljónir og hann mun fljúga áfram í dag,” segir Eyrún. Hún segir ekki hægt að segja til um hvort hærri upphæð hafi safnast í ár en í fyrra. „Þetta er á svipuðu róli það er ekki hægt að segja til um hvernig þetta verður. Síðasti dagurinn er í dag og það verður spennandi að sjá hvernig þetta fer.” Fjölmargir erlendir hlauparar hafa skráð sig í ár. „Það eru yfir 4000 erlendir hlauparar skráðir. Sá hópur stækkar yfirleitt milli ára og þau eru yfirleitt meir að fara í lengri vegalengdirnar,” segir Eyrún. Eyrún hvetur alla til að fara í Laugardalshöll í dag á skráningarhátíðina á Fit and Run Expo því fjölmargir viðburðir verða þar í dag. Einnig hvetur hún fólk til að fara í bæinn á morgun og hvetja hlauparana áfram. „Í fyrra mættu 20 þúsund manns á skráningarhátíðina. Svo hvet ég folk til að fara í bæinn það verða einhverjir tugi þúsundar manna þar allan daginn og það er svo mikil stemming. MC Gauti hitar upp fyrir skemmtiskokkið klukkan tólf,” segir Eyrún
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Sjá meira