Sjónvarps- og útvarpssendar sem tryggja hér fjölbreytni eru í óvissu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. ágúst 2017 06:00 Póst- og fjarskiptastofnun segir sennilegt að útvarps- og sjónvarpssendar þurfi að víkja úr Vatnsendahvarfi vegna áforma Kópavogsbæjar um fjölgun íbúðarhúsalóða á svæðinu. vísir/andri marinó
Póst- og fjarskiptastofnun segir þrönga stöðu varðandi valkosti um nothæfa sendastaði fyrir hljóðvarp og sjónvarp á höfuðborgarsvæðinu standa í vegi fyrir auknu framboði á slíkri þjónustu fyrir hefðbundin dreifinet. „Það gæti haft í för með sér verulega röskun á aðgengi að umræddri þjónustu verði ákveðið að leggja niður einhvern af þeim fáu sendastöðum sem eru nú í notkun, til dæmis vegna íbúðabyggðar,“ segir PFS um málið í minnisblaði til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Fram kemur að á höfuðborgarsvæðinu séu sendar út í lofti 23 útvarpsdagskrár á FM-tíðnisviðinu og um 20 sjónvarpsdagskrár á UHF-tíðnisviðinu. Helstu sendastaðir fyrir hljóðvarp séu nú á Vatnsendahvarfi og á Úlfarsfelli og að á Vatnsendahvarfi séu einnig sjónvarpssendar. Á báðum stöðum sé nokkur fjöldi kraftmikilla senda með góðri útbreiðslu á mestöllu höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar sé óvissa um framtíð sendastaðanna tveggja. „Íbúðabyggð hefur með árunum færst nær og samkvæmt nýlegum fréttum hefur Kópavogsbær í hyggju að fjölga íbúðarhúsalóðum á svæðinu,“ segir um stöðuna í Vatnsendahvarfi. „Ekki hefur komið skýrt fram hvaða afleiðingar það mun hafa varðandi sendaaðstöðuna á hæðinni, en sennilegt er að æskilegt verði talið að sendarnir víki. Á Úlfarsfelli er Vodafone með sendaaðstöðu en hún er á bráðabirgðaheimild og ekki hefur fengist varanleg heimild frá Reykjavíkurborg sem tryggir aðstöðu á fjallinu til frambúðar.“ PFS bendir á að ef útsendingakerfi verði byggt upp með smærri sendum á lægri stöðum inni í byggð verði meira um skuggasvæði og að þurft geti að nota fleiri en eina senditíðni á hverja dagskrá. „Slíkt leiðir til óskilvirkrar nýtingar á tíðnirófinu og dregur úr mögulegum fjölda dagskráa á svæðinu. Þetta gæti enn fremur haft í för með sér að beita verði flóknari og dýrari aðferðum við útsendingar sem smærri útvarpsstöðvar ráða hugsanlega ekki við. Þannig gæti skortur á góðum sendastöðum á endanum dregið úr fjölbreytni á hljóðvarpsmarkaðnum og öryggi útsendinga,“ er varað við í minnisblaðinu. Þá er bent á að flutningur sjónvarpssenda gæti haft í för með sér rask fyrir tugi þúsunda heimila þar sem UHF-móttökuloftnet eru stefnuvirk og í mörgum tilfellum þarf að breyta stefnu þeirra komi til flutnings. Lausn til frambúðar er sögð geta verið flókin og þurfa aðkomu margra. Heppilegir sendastaðir geti fallið undir skipulagsvald fleiri en eins sveitarfélags. „Mismunandi leiðir geta komið til skoðunar, til dæmis að staðsetja senda á fjallstoppum og/eða byggja stór fjarskiptamöstur,“ segir PFS sem kveður nauðsynlegt að þeir, sem málið varðar, jafnt fyrirtæki sem stjórnvöld, skoði málið „heildstætt og freisti þess að ná saman um skipulagningu sendistaða á höfuðborgarsvæðinu sem gætu tryggt almenningi fjölbreyttar og öruggar hljóðvarps- og sjónvarpsútsendingar á svæðinu.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sjá meira