Matvælafyrirtæki kært vegna skjalafals 3. ágúst 2017 10:00 Matvælafyrirtæki reyndi að falsa undirskrift vegna vatnssýna.
Lögreglumál Matvælastofnun hefur kært matvælafyrirtæki til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, en fyrirtækið er staðsett þar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST. Fyrirtækið falsaði niðurstöður greininga á vatnssýni og reyndi að blekkja stofnunina. Eftirlitsmaður frá MAST mætti í fyrirtækið í byrjun júlí og vildi fá að sjá nýjustu niðurstöður greininga á vatnssýni. Forsvarsmaður fyrirtækisins sagðist ekki hafa þær en sendi stofnuninni síðar sama dag skjal dagsett 12. júní með niðurstöðum frá viðurkenndri rannsóknarstofu. Þar kom fram að vatnssýni sem fyrirtækið hefði afhent til greiningar uppfyllti kröfur reglugerðar um neysluvatn. Skjalið var á bréfsefni rannsóknarstofunnar og undirritað af starfsmanni hennar. Starfsmann MAST grunaði að maðkur væri í mysunni og efaðist um gildi skjalsins. Rannsóknarstofan hefur staðfest við MAST að hafa aldrei búið til skjalið og forsvarsmaður fyrirtækisins hefur einnig viðurkennt svikin. Sökum alvarleika brotsins kærði MAST fyrirtækið til lögreglu en skjalafals er brot á almennum hegningarlögum. Matvælafyrirtæki eins og hér á við taka sjálf vatnssýni árlega og senda á rannsóknarstofu til greiningar. Niðurstöður greininga eru síðan varðveittar og skoðaðar af eftirlitsmönnum, en fyrirtæki sem þessi eru heimsótt tvisvar til þrisvar á ári. Málavextir eru þeir að í janúar 2017 fékk fyrirtækið afhentar niðurstöður greininga rannsóknarstofu á vatnssýni sem það hafði sjálft tekið til skoðunar á vatnsgæðum. Niðurstöðurnar sýndu að vatnssýnið stæðist ekki kröfur samkvæmt reglugerð með tilliti til örverutalningar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira