Komu kópnum Kára til bjargar Samúel Karl Ólason skrifar 3. ágúst 2017 11:45 Kári borðar ekki og er orðinn grindhoraður. Vísir
Ungur selkópur sem var í slæmu ásigkomulagi hefur undanfarna daga leitað í fjörur Jökulsárlóns. Ferðamenn hafa hringt á lögreglunnar tvisvar sinnum í lögregluna vegna kópsins. Rósa Björk Halldórsdóttir, yfirlandvörður hjá Vatnajökulsþjóðgarði, segir frá því að kópnum, sem fengið hefur nafnið Kári, hafi verið bjargað og nú sé hlúð að honum. Rósa segir í Facebookfærslu að meginregla landvarða á svæðinu sé að leyfa náttúrunni að hafa sinn gang. Nú sé sá tími sem urtur bíti frá sér kópana til þess að venja þá af spena. Rósa hringdi í vinkonu sína sem er dýralæknir til að skoða Kára. Var ástand hans metið svo að hann myndi ekki lifa án afskipta.„Þegar við vorum búin að meta ástand kópsins og vera svo nálægt þessu saklausa hjálparvana dýri sem var að berjast fyrir lífi sínu með hóp af ferðamönnum sem hópuðust í kring sem gerði hann ennþá varnarlausari. Þá fannst okkur við þurfa að gera það sem við gátum svo við ákváðum að reyna að bjarga honum,“ skrifar Rósa. Kári fékk ormalyf og þar að auki sýklalyf vegna slæmrar sýkingar í sárum. Sárin voru hreinsuð og var Kári færður úr fjörunni í kari þar sem hann mun þurfa fleiri sprautur á næstu dögum. Rósa gerir mauk fyrir Kára úr fiski og sprautar upp í hann. Hann er þó lítið að borða og er orðinn grindhoraður. „Ég á ekki von á að okkur takist þetta,“ segir Rósa.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira