Innlent

Kona slasaðist við Eldborg á Snæfellsnesi

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Björgunarsveitarfólk bar konuna þrjá kílómetra í átt að sjúkrabíl. Konan slasaðist á fæti.
Björgunarsveitarfólk bar konuna þrjá kílómetra í átt að sjúkrabíl. Konan slasaðist á fæti. Guðbrandur Örn
Björgunarsveitir á Vesturlandi komu konu til aðstoðar sem hafði slasast á fæti og gat ekki gengið. Konan var á göngu við Eldborg á Snæfellsnesi og hrasaði í hlíðum fjallsins.

Það tók Björgunarsveitir þó nokkurn tíma að koma á vettvang en þær voru boðaðar út klukkan eitt. Ástæðan var mikil fjarlægð frá þjóðvegi. Konan var borin rúma þrjá kílómetra að sjúkrabíl sem flutti hana til aðhlynningar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×