Frávísun lögreglustjóra felld úr gildi af saksóknara Kristinn Ingi Jónsson skrifar 16. júní 2017 07:00 Mikið magn regnbogasilungs slapp úr eldisstöð fyrr á árinu. Vísir/GVA
Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi þá ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum að vísa frá kæru Landssambands veiðifélaga vegna sleppingar regnbogasilungs á Vestfjörðum. Skal lögreglustjórinn taka málið til nýrrar meðferðar. Með bréfi landssambandsins til lögreglustjórans þann 11. janúar síðastliðinn var farið fram á opinbera rannsókn vegna ætlaðra sleppinga á regnbogasilungi úr fiskeldiskvíum. Í bréfinu kom meðal annars fram að regnbogasilungur hefði komið víða fram í veiðum um norðan- og vestanvert landið og meðal annars veiðst í ám við Húnaflóa og Faxaflóa. Taldi sambandið hafið yfir allan vafa að mikið magn regnbogasilungs hefði sloppið úr eldisstöð á þessu ári. Í ljósi þess magns sem um ræddi væri ljóst að silungurinn hefði strokið úr sjókvíaeldi. Lögreglustjórinn vísaði málinu hins vegar frá meðal annars af þeim sökum að Matvælastofnun væri með málið til meðferðar. Sú ákvörðun var kærð til ríkissaksóknara sem hefur nú fellt hana úr gildi. Ríkissaksóknari bendir á að af rökstuðningi lögreglustjóra verði ráðið að ekki hafi farið fram sérstök athugun eða verið leitað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um hvort kæran geti átt við rök að styðjast. Að mati ríkissaksóknara hefði verið rétt af lögreglustjóra að fara betur ofan í saumana á kæruefninu áður en ákvörðun var tekin um að vísa kærunni frá. Rétt hefði verið að leita eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um meintar slysasleppingar, þar með talið að staðreyna hvort eftirlit eða athugun stofnunarinnar hafi farið fram eða væri yfirvofandi eða yfirstandandi og hvað hafi komið fram við þá athugun.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Sjá meira