Íslenski boltinn

Velsk landsliðskona til Vals

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
James hefur leikið 48 landsleiki fyrir Wales.
James hefur leikið 48 landsleiki fyrir Wales. vísir/getty
Velska landsliðskonan Angharad Jane James hefur samið við Val um að leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar.

James er 22 ára gamall miðjumaður sem lék síðast með Notts County á Englandi. Hún hefur einnig leikið með Arsenal og Bristol Academy.

James lék sinn fyrsta landsleik árið 2011, þegar hún var aðeins 17 ára. Hún hefur alls leikið 48 landsleiki fyrir Wales og skorað tvö mörk.

Valur vann 4-0 sigur á ÍBV í gær. Þetta var fyrsti sigur Valskvenna í Pepsi-deildinni í ár en þær töpuðu fyrir Þór/KA í 1. umferðinni.

James er komin með leikheimild og getur því leikið með Val þegar liðið mætir Breiðabliki í stórleik 3. umferðar á miðvikudaginn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×