Einstök kápa úr Titanic seldist fyrir 21 milljón Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. apríl 2017 16:10 Kápan er í einstaklega góðu ástandi. PA
Loðkápa sem áður var í eigu þernu á Titanic var seld á uppboði í dag fyrir 150 þúsund pund, næstum 21 milljón króna. Þernan, Mabel Bennett, snaraði sér í kápuna þegar skemmtiferðaskipið ósökkvanlega rakst á ísjakann í jómfrúarferðinni árið 1912. Afleiðingarnar þekkja flestir, rúmlega 1500 skipverjar ýmist drukknuðu eða dóu úr kulda. Hvort það hafi verið kápan eða útsjónarsemin sem hélt lífinu í hinni 33 ára gömlu Bennett skal ósagt látið en hún komst í það minnsta um borð í björgunarbát númer 5 og lifði til 96 ára aldurs. Hún gaf frænku sinni kápuna árið 1960 sem þó klæddist henni aldrei þar sem henni þótti kápan of þung. Því hefur hún lítið sem ekkert verið notuð í þau 56 ár sem liðu þangað til hún rataði á uppboðið í dag í Wiltskíri í suðvestur Englandi. Haft er uppboðshaldaranum í Telegraph að kápan sé einstök með öllu. „Ekki einungis var kápan í eigu starfsmanns Titanic heldur er þetta, eftir því sem við best vitum, eina flíkin í jafn frábæru ástandi úr skipinu sem nokkurn tímann hefur verið boðin upp.“ Búist var við því að kápan myndi seljast á um 50 til 80 þúsund pund en áhugasamur kaupandi í salnum var tilbúinn að reiða fram næstum þrefalt hærri upphæð eins og fyrr segir. Kápan í öllu sínu veldi.PA
Titanic Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Sjá meira