Rannsaka dauðsfall konu sem glímdi við fæðingarsturlun Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 13. apríl 2017 12:20 Konan var flutt með sjúkrabifreið vegna alvarlegrar fæðingarsturlunar. vísir/getty
Réttarrannsókn hófst í Bretlandi á þriðjudag vegna dauðsfalls konu sem lést fáeinum dögum eftir að hafa verið haldið niðri með valdi af lögregluþjónum og sjúkraliðum síðla árs 2012. The Guardian greinir frá. Hin látna, Alice Gibson-Watt, var sérfræðingur á sviði gamalla skartgripa og kom meðal annars fram í þáttunum Antiques Roadshow sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni BBC. Gibson-Watt, sem var 34 ára gömul, ól barn fimm vikum áður en hún lést. Í kjölfar barnsburðarins glímdi hún við fæðingarsturlun, geðrænan kvilla sem lýsir sér meðal annars í hegðunartruflunum, ranghugmyndum, mikilmennskuhugmyndum og ofskynjunum. Ástandið er afar sjaldgæft en talið er að ein til tvær af hverjum þúsund konum glími við kvillann eftir fæðingu. Tilfelli Gibson-Watt var alvarlegt en eiginmaður hennar lýsti því meðal annars í réttarsal hvernig hún skreið eftir gólfum á heimili þeirra hjóna og hrópaði í sífellu að dóttir þeirra væri látin. Þá var Gibson-Watt haldin ranghugmyndum og á að hafa talið að hún ætti í fjarskynjunarsambandi við fimm vikna gamalt barn sitt. Sjúkralið var kallað til vegna ástands Gibson-Watt og gekk erfiðlega að hafa hemil á henni í sjúkrabifreiðinni. Sjúkraliðar og lögregla héldu henni niðri og þurftu að beisla hana vegna mótspyrnu hennar. Gibson-Watt fór í hjartastopp fáeinum dögum síðar og var strax í kjölfarið send í aðgerð eftir að í ljós kom að hún hafði hlotið innvortis blæðingar vegna rifu á lifur. Hún lést á gjörgæslu skömmu síðar. Sjúkraliði sem aðstoðaði við að halda Gibson niðri í sjúkrabifreiðinni sagði fyrir rétti að hún teldi að enginn viðstaddra hefði tekið svo harkalega á henni að hún hefði getað hlotið innvortis meiðsl sem kunna að hafa dregið hana til dauða. Réttarrannsókninni mun ljúka í lok apríl.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Sjá meira