Facebook lokaði 30 þúsund frönskum síðum Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. apríl 2017 13:15 Fyrsta umferð forsetakosninganna í Frakklandi fer fram hinn 23. apríl næstkomandi. Starfsmenn Facebook vilja ekki endurtaka mistökin frá forsetakosningunum í Bandaríkjunum og sitja aðgerðalausir hjá meðan fölskum fréttum og áróðri er dreift í aðdraganda kosninga. vísir/epa
Facebook lokaði í gær 30 þúsund síðum og reikningum í Frakklandi í viðleitni til að sporna gegn fölskum fréttum, tíu dögum fyrir fyrstu umferð forsetakosninganna í Frakklandi. Um er að ræða viðamestu aðgerð við lokun falskra síðna sem Facebook hefur ráðist í frá upphafi að því er fram kemur í frétt Reuters. Aðgerðin er óvenjuleg því alla jafna tekur Facebook til greina einstakar kvartanir, flokkar þær og bregst við að að loknu ferli. Facebook þurfti að sæta harðri gagnrýni eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fyrir að bregðast ekki við fölskum síðum sem dreifðu alls kyns áróðri í aðdraganda kosninganna. Öryggis- og leyniþjónustustofnanir vestanhafs hafa komist að þeirri niðurstöðu að rússnesk stjórnvöld hafi skipt sér af forsetakosningunum í þeim tilgangi að hjálpa Donald Trump að bera sigur úr býtum. Embættismenn telja að sambærilegar aðgerðir standi nú yfir í Evrópu til að hjálpa öfgasinnuðum þjóðernisflokkum að ná árangri og til þess að grafa undan Evrópusambandinu. Þannig var greint frá því í vikunni að bresk rannsókn hefði leitt í ljós að rússneskir og kínverskir tölvuhakkarar hefðu að öllum líkindum tekið niður opinbera vefsíðu um skráningu kjósenda í aðdraganda Brexit atkvæðagreiðslunnar í júní í fyrra. Mikill þrýstingur hefur verið á Facebook, Twitter, Google og Youtube að bregðast við fölskum fréttum í aðdraganda kosninga í Frakklandi og Þýskalandi. Reuters greinir frá því að helsti hvati þess að Facebook réðst í aðgerðirnar í Frakklandi var markmið um að draga úr fölskum fréttum í aðdraganda forsetakosninga. Facebook keypti líka og birti heilsíðuauglýsingar í helstu dagblöðum Þýskalands í gær þar sem lesendur fá leiðbeiningar um hvernig eigi að koma auga á falskar fréttir. Tímasetningin birtingarinnar er heldur ekki tilviljun því kosið verður til þýska þjóðþingsins hinn 24. september næstkomandi.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Sjá meira