Gríðarstór gagnaleki: Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna sögð hafa hakkað sig inn í alþjóðlegt bankakerfi Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. apríl 2017 17:03 Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna hefur verið harðlega gagnrýnd í kjölfar gagnalekans.
Gríðarlegu magni af viðkvæmum öryggisupplýsingum er varða alþjóðlegt bankakerfi og öryggisbrest í Microsoft-stýrikerfinu hefur verið lekið á netið. Hakkarahópurinn Shadow Brokers birti skjölin. BBC greinir frá.Í lekanum er Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, sögð hafa brotist inn í Swift-kerfið sem er staðlað bankafærslukerfi. Færslunetið gerir alþjóðlegum bönkum kleift að flytja fjármagn á milli heimshluta. Innbrotið myndi gera stjórnvöldum í Bandaríkjunum kleift að fylgjast með alþjóðlegri bankastarfsemi og millifærslum á fjármagni. Þetta yrði þýðingarmesta uppljóstrun á viðkvæmum skjölum frá Þjóðaröryggisstofnuninni síðan Edward Snowden lak gögnum árið 2013, ef sönn reynist. Aðilar að málinu, þar á meðal Þjóðaröryggisstofnunin sjálf, hafa annað hvort firrt sig ábyrgð eða neitað að tjá sig um það. Fjölmargir sérfræðingar hafa þó hamrað á trúverðugleika lekans. Í tilkynningu frá höfuðstöðvum Swift í Belgíu sagði: „Við búum ekki yfir neinum sönnunargögnum sem gefa til kynna að innrásaraðilar hafi komist inn í kerfið okkar eða skilaboðaþjónustu.“ Ekkert hefur enn heyrst frá Þjóðaröryggisstofnununni varðandi málið.Þjóðaröryggisstofnunin með puttana í bönkum í Mið-Austurlöndum Í skjölum frá Shadow Brokers hópnum virtist koma fram að leynilegu gagnasöfnunarforriti hafi verið komið fyrir innan öryggisnets nokkurra banka. Smærri bankar notfæra sér oft þjónustu á borð við þá sem Swift býður upp á. Þannig fá þeir utanaðkomandi aðila til að sjá um millifærslur á fjármagni. Á meðal þess sem fannst í lekanum voru skjöl sem bentu til þess að a.m.k. ein stór þjónustuskrifstofa innan Swift-kerfisins, EastNets, hafi orðið fyrir barðinu á hökkurum. Chris Thomas, öryggissérfræðingur hjá Tenable, sagði að greining á lekagögnunum benti til þess að bandaríska ríkisstjórnin gæti „fylgst með, og gott ef ekki raskað, færslum á fjármagni til hryðjuverkahópa.“ EastNets hafnar öllum fregnum um öryggisbrest og sagði upplýsingar úr lekanum úreltar. Viðskiptavinir þjónustunnar eru til að mynda staðsettir í Kúveit, Dubai, Barein, Jemen og Katar. „Ef þú hakkar þig inn í þjónustuskrifstofuna þá hefurðu líka aðgang að öllum viðskiptavinum þeirra, öllum bönkunum,“ sagði Matt Suiche, stofnandi Comae Technologies sem sérhæfir sig í netöryggi.Windows-stýrikerfinu ógnað Gögnin úr lekanum innihéldu svokallaða „núlldaga“ eða „zero days“, öryggisbresti sem hvorki öryggisfyrirtækin sjálf né netöryggissamélagið í heild sinni vissu af. Þessir öryggisbrestir verkuðu á Windows-tækjabúnað en sérfræðingar sögðu þó að áhrifa þeirra myndi ekki gæta í nýjustu útgáfu stýrikerfisins, Windows 10. Í janúar reyndi hakkarahópurinn að halda uppboð á gögnunum, sem metin eru á um tvær milljónir Bandaríkjadala, án árangurs. Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna sætir nú gagnrýni fyrir að hafa ekki deilt upplýsingum um tölvuárásina með Microsoft. Í tilkynningu frá hugbúnaðarrisanum sagði að unnið væri að því að „skoða skýrslu um málið og gerðar yrðu nauðsynlegar ráðstafanir til að vernda viðskiptavini fyrirtækisins.“ Edward Snowden, sem telst líklega frægasti uppljóstrari heims, hefur haldið umræðu um málið á lofti á Twitter-síðu sinni í dag:Facebook's Chief Security Officer on @NSAGov's refusal to warn US software makers about the stolen NSA malware now wrecking the internet. https://t.co/V2ZrnRqWfN— Edward Snowden (@Snowden) April 14, 2017
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira