Vilja skjóta eldflaug aftur samdægurs Samúel Karl Ólason skrifar 31. mars 2017 08:00 Falcon 9 eldflauginni skotið á loft
Elon Musk, stofnandi og eigandi SpaceX, segir fyrirtækið hafa náð „byltingakenndum“ árangri árangri í gær með því að skjóta Falcon 9 eldflaug út í geim í annað sinn og lenda henni aftur á jörðinni í heilu lagi. Með þessari tækni sem fyrirtækið hefur þróað sparast verulegur kostnaður við geimskot. Hefðbundnar eldflaugar eru oftast hannaðar til þess að brenna upp í gufuhvolfinu eftir geimskot. Því þarf að smíða nýja eldflaug fyrir hvern gervihnött sem sendur er á sporbraut um jörðu, eða í hvert sinn sem birgðir eru sendar til geimstöðvarinnar. Musk segir næsta markmið SpaceX vera að skjóta sömu eldflauginni upp í geim, tvisvar sinnum á einum sólarhring.Incredibly proud of the SpaceX team for achieving this milestone in space! Next goal is reflight within 24 hours.— Elon Musk (@elonmusk) March 30, 2017 Lendingin í gær var í níunda sinn sem eldflaug SpaceX lendir í heilu lagi á jörðinni eftir geimferð. Sex eldflaugar hafa lent á skipinu Of Course I Still Love You og þrjár hafa lent á jörðinni. Fyrirtækið hefur unnið að þróun þessarar tækni í fimmtán ár og Musk hefur sagt að markmiðið sé að nota eldflaugar eins og flugvélar og jafnvel bíla. Hann lítur á þessa þróun, að draga verulega úr kostnaði við geimskot, sem mikilvægan lið í að koma upp byggð manna á Mars. Eldflaugin sem skotið var á loft í gær verður gefin til NASA, Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, og verður hún til sýnis á Canaveralhöfða í Flórída.Geimskotið Musk tjáir sig. Myndir frá Flórída. More photos from today's Falcon 9 launch and first stage landing → https://t.co/095WHX44BX pic.twitter.com/c3UYhMrDec— SpaceX (@SpaceX) March 31, 2017
Mest lesið „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Fréttir „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Innlent Grunaður um stórfellda líkamsárás Innlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Erlent Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Innlent Fleiri fréttir Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Sjá meira